Skottur

6 á netinu!

þriðjudagur, maí 20, 2003

Gleði, gleði, sæla, sæla! Eftir blóð, svita og tár hefur mér loksins tekist að komast inn á þessa !"##$%&&/( síðu... nei ég segi nú bara svona... En það er gaman að segja frá því að þegar ég var að brasast í þessu og fékk bara error á error ofan kallaði ég í neyð minni á bróður minn, tölvugúrúinn (eða nördið, what ever) til að hjálpa mér að koma þessu í gagnið. Eftir að ég var búin að setja hann inn í málið og hann búinn að brasast aðeins í þessu kom í ljós að þetta var ekki !""#$#$%&& tölvunni að kenna (eins og ég hafði áður sett fram kenningu um) heldur þurfti undrabarnið Una bara að ýta á "send" takkann með músinni í staðinn fyrir að ýta á enter... hmmm... ætli ég hafi fengið lookið og hann... tja...
Það er líka gaman að segja frá því... eða, nei það er ekki gaman að segja frá því en eflaust gaman að heyra það... að í dag sýndi ég það enn og sannaði að ég er algjörlega MISHEPPNUÐ! Ég var semsagt að fara heim úr skólanum um fjögurleytið í dag og ætlaði að skutla Þórunni heim í leiðinni. Þar sem að ég var að fara í mundlig eksamen i dansk síðar um daginn úr Gravskrift for Rödhætte (hata danskt ö) var Tóta að tala við mig á dönsku um bókina. Það er greinilega of mikið fyrir minn litla heila (vísa hér í fyrri kenningu um skiptingu hæfileika í fjölskyldunni) að keyra, tala dönsku og rifja upp bókina í einu. Ég byrjaði á því að beygja til hægri þegar ég kom af MA planinu í staðinn fyrir vinstri. Ég lét það þó ekki draga úr mér kjark (eins og ég HEFÐI ÁTT AÐ GERA) og tók þá ákvörðun að taka U beygju á ljósunum rétt hjá skólanum. En þegar að því kom (tek það fram að ég var ennþá að tala dönsku) náði ég ekki að beygja almennilega og keyrði pínu upp á gangstéttina. Ég þurfti að bakka og vesenast til að komast áfram og á meðan á því stóð kom grænt ljós á hina en þeir þurftu að gera svo vel að bíða á meðan kálhausinn ég (já, Helga, ég sagði KÁLHAUS!) reddaði málum! Ég hef sjaldan skammast mín eins mikið, og þá tel ég með fallið í Kvosinni!!!!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home