Skottur

6 á netinu!

sunnudagur, júní 01, 2003

Mér finnst að það ætti að setja lög gegn því að hafa kafla í námsbókum lengri en svona 30 - 35 bls.!!! Nefni ég hér dæmi 5. kafla í minni ástkæru félagsfræðibók, sem er ÓENDANLEGUR og þar að auki viss endurtekning á 2. kafla sem er mjög leiðinlegur... Úff, bara þrjú próf eftir... eða reyndar fjögur ef ég tel munnlega frönskuprófið með (sem ég reyndar geri oftast ekki... þó að ég viti ekki almennilega af hverju, það er jú próf eins og öll hin og á skilið að fá viðurkenningu!) sem gæti hugsanlega verið dauðinn... en ætli manni takist ekki að klóra sig fram úr því, mér hefur nú vanalega gengið ágætlega í þessum munnlegu prófum, þrátt fyrir skort á flegnum peysum... jæja, Practice... bæjó :o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home