Í gær var ég í skólanum fram eftir öllu. Ég var í skólanum til 16.05 og síðan á laaaangri kóræfingu fram til hálf níu eða svo. Hún átti að vera lengur, en það voru svo margir sem stungu af í kvöldmatarhléinu og því var tilgangslaust að hafa hana alveg fram eftir kvöldi. En næsta þriðjudag, og hugsanlega þarnæsta verða aftur langar æfingar, það verður að æfa fyrir árshátíðina. En ég hlakka svo til.
Svo er útilega um næstu helgi, ætli það verði ekki bara gaman :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home