Ég ákvað að skrifa eitthvað hérna inn svona einu sinni, þessi síða er búin að vera svolítið dauf upp á síðkastið.
Núna erum við víst ekki bara dreifðar milli landa heldur einnig milli heimsálfa, það er mjög sérstök tilhugsun. Ég vona bara að Þórunn hafi það gott í Japan og skemmtið ykkur nú vel um verslunarmannahelgina.
Ég veit reyndar ekki mikið um hvernig er að vera í svona Versló-stemmingu, ég hef ekki verið á Íslandi um verslunarmannahelgi síðan árið 2000.
Hafið það gott.
Við hittumst í Keflavík eftir aðeins 29 daga.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home