halló.....hérna sit ég í "ómenningunni" í Reykjavík......sem var af einhverjum dularfullum ástæðum víst menningarborg Evrópu á seinasta eða þarseinasta ári.....þvílík fásinna!!!! En allavegana þá er ég búin að gera alveg voðalega margt skemmtilegt......við mamma fórum að versla og hún keypti handa mér gallabuxur, kjól og bikini.....allt alveg GEÐVEIKT flott!!!! (það borgar sig greinilega að vera blankur....kannski ég leggi það í vana minn). Svo gisti ég hjá Ástu í gær og við slöppuðum bara af......fengum eitthvað letikast og svo í dag þá fór ég í sumarbústað með ömmu og afa að heisækja Dagnýju (systir pabba) og Guðna Pál (manninn hennar) og villingana (krakkarassgötin) þeirra. Það var rosa stuð....við fórum í pottinn og svo spilaði ég við þau og svo fórum við í fultl af leikjum.....ég er nebbla uppáhaldsfrænkan þeirra og auðvitað verð ég að standa undir nafninu ;o) en allavegana þá ætla ég að fara að koma mér og hætta að skrifa....enda nóg komið :o) sjáumst á morgunn eða hinn eða hinn eða hinn eða......
Ps. Una.....ég kom ekki nálægt þessari hringingu hjá þér á svona ókristilegum tíma!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home