Bonjoir (er það ekki skrifað svona????) :o) Það var bara fínt í útilegunni....við fórum nú reyndar ekki fyrr en seint á laugardeginum því að Salvör var hjá mér. Það var ekkert smá sukk hjá okkur Salvöru....fyrst fórum við og keyptum okkur föt, svo pöntuðum við okkur Greifapizzu, svo fórum við og leigðum okkur spólu og átum nammi og sváfum svo út á laugardaeginum....mjög indælt. En allavegana...þá var þetta alveg kostuleg útilega. Við vissum ekkert hvert við ætluðum þegar við lögðum af stað en svo langaði mig allt í einu eitthvað upp í Mývatnssveit svo að við fórum af stað þangað en svo þegar við vorum komin upp í víkurskarð þá sáum við þennan dýrindis dal til að tjalda í....hann heitir held ég Hrossadalur og er þarna á bak við Vaðlaheiðina....svo að við földum bara bílinn þarna og fórum svo með dótið okkar oní þetta dalverpi....en það var ekki betra en svo að þessi stapur var bara ein stór mýri og eini þurri bletturinn á svæðinu var í halla....en það aftraði okkur ekki svo að við tjölduðum bara í hallanum......og það helvíti ætla ég aldrei að gera aftur!!! þetta var nú ekki mikill halli....en nóg til þess að um nóttina þá vaknaði ég svona grilljón sinnum við það að ég var bún að renna niður í botninn á tjaldinu og var lá þar í einhverri klessu!!!! mjög óskemmtilegt!!! en þetta var samt alveg ágæt útilega :o) en nóg um það...ég er nebbla í vinnunni.....á að mæta aftur í kvöld....skrifa kannski línu þá.....;o)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home