Helú... ég er alveg að deyja úr spennu eftir bókinni! Ég er búin að lesa 4 og 3 og er núna að lesa 2... samt ekki nógu sniðugt að lesa þær aftur á bak (eða þið skiljið hvað ég meina ;op)
Ohh... ég er svo mikill auli... í gær var ég að skoða einhvern ómerkilegan lundasegul í vinnunni og það gekk ekki betur en svo að ég missti hann í gólfið! Og hann brotnaði í tvennt!!! Drasl dauðans, svo rétt svo snerti ég segulinn aftan á öðrum bitanum og hann datt líka af!!! OG vitiði hvað þetta "#$%$%$ piece of crap kostar? 500 kr.!!!!! Ég var búin að skrifa þetta á mig og alles, en svo sagði yfirmaðurinn mér að strika það út, hann er svo mikið gæðablóð :o)
Hey, Helga Auður er komin heim :o) Talaði að vísu bara örstutt við hana í dag, en hún er allavega á lífi og ennþá talandi á íslensku... það verður að nægja í bili :o)
Hvar ertu aftur að vinna í sumar, Inga?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home