Skottur

6 á netinu!

laugardagur, september 13, 2003

Jæja... Valdís mín... orðin "ein" og "ræða" koma mér til hugar... ;op

En hvað haldiði að komi næst? Já, það var rétt hjá ykkur:

Hæ, ég heiti Una og ég er AULI - Part Three

Ég ætlaði semsagt að hitta Þórunni í dag þegar ég væri búin að vinna, sem var rúmlega tvö. Síminn minn var batteríslaus, þannig að ég hringdi í hana úr vinnunni áður en ég fór og hún sagði mér að hún væri hjá pabba sínum. Ég bara jánkaði því og keyrði sem leið lá upp í DREKAGIL, þar sem pabbi hennar hefur ávallt búið þann tíma sem ég hef þekkt umrædda stúlku... Svo var ég komin þangað og beið og beið og beið fyrir utan, en ekki kom Þórunn út. Síminn var alveg dauður, þannig að ég gat ekki hringt í hana svo ég fór inn... en málið var að ég var búin að steingleyma á hvaða hæð þau bjuggu! Það hékk þarna einhver listi yfir íbúa, en mér tókst bara alls ekki að finna þau! Dauði og djöfull! Ég mundi samt hvaða íbúð þau bjuggu í þannig að ég eyddi næsta HÁLFTÍMANUM (engar ýkjur í gangi) í það að fara upp og niður í lyftunni og reyna að átta mig á því hvar í andskotanum þau bjuggu. Við erum að tala um sjö hæðir hérna, ég fór a.m.k. tvisvar á hverja þeirra... Eitthvað rámaði mig í fjórðu hæð, en þegar ég dinglaði þar kom einhver kona til dyra sem ég hafði aldrei séð áður, svo ég stumraði bara eitthvað upp úr mér að ég væri víst á vitlausri hæð og var asnaleg... svo fór ég að lyftunni og þegar hún opnaðist var maður í henni. Þá brá mér, ég gaf frá mér eitthvað hljóð og steig aftur á bak og var, já, asnaleg... Að lokum gafst ég upp og ætlaði að fara til Helgu Völu og fá að hringja hjá henni í Þórunni. En, nei, nei, þegar ég var að fara að keyra út af bílastæðinu bakkar stelpa í hliðina á mér! Það slasaðist sem betur fer enginn, hún fór í farþegahliðina, en mér brá geðveikt mikið og ég var alveg með í maganum lengi á eftir. Bílhurðin er hins vegar dáldið löskuð, en tryggingarnar borga það örugglega því að ég var í rétti. Löggan kom og við fylltum út tjónaskýrslu og svoleiðis. En, já, þegar við vorum að bíða eftir löggunni fékk ég að hringja hjá stelpunni sem keyrði á mig og þá kom í ljós að Þórunn gleymdi víst að segja mér að pabbi hennar er fluttur í FLÖTUSÍÐU!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home