Skottur

6 á netinu!

föstudagur, ágúst 29, 2003

Hæ, ég heiti Una og ég er AULI - Part Two

Þannig er mál með vexti að núna í kvöld var planað að kíkja í bíó á hina rómuðu ræmu Amerísk Baka - Brúðkaupið. Þar sem að Valdís ætlaði að vera dræver kvöldsins og við vorum dáldið seinar fyrir var ég voða skynsöm og beið eftir henni fyrir utan húsið mitt. Þá hringdi hún og spurði hvort ég gæti ekki labbað upp götuna mína og beðið þar til að flýta fyrir. Ég gerði það og fór meira að segja yfir Mýrarveginn til að ég gæti bara nánast sest beint upp í bílinn. Þarna stend ég í pínu stund og sé þá álengdar hvar lítill hvítur bíll kemur keyrandi. Hann færist nær og ég sé að þetta er Polo, þriggja dyra og það er Y í númerinu. "Hmmm... hugsa ég, þetta hlýtur að vera Valdís, hverjar eru líkurnar á því að annar svona bíll muni keyra hér framhjá akkúrat núna?" (STÓR MISTÖK nr.1!) Bíllinn færist nær og minn mjög svo áhrifagjarni heili sannfærir mín mjög svo gölluðu augu (-7.75 á báðum, þarf ég að segja meira?!) um að góðvinkona mín hún Valdís sitji þar við stýri, jafnvel við annan mann (Guðrúnu, sem hún ætlaði að sækja fyrst). Þá er komið að STÓRUM MISTÖKUM nr. 2, sem eru þau að ég rek hendina út og hoppa einhvernveginn upp í mjög ýkta húkka-far hreyfingu. Bíllinn brunar framhjá og þá sé ég, mér til skelfingar, að þetta er vissulega ekki Valdís. Við stýri situr manneskja sem ég hef aldrei á ævi minni séð áður og mun VONANDI aldrei sjá aftur... Og, já, hún var ein í bílnum...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home