Skottur

6 á netinu!

sunnudagur, september 17, 2006

Endurreisn

Þar sem ekkert lát virðist vera á heimshornaflakki síðueigenda, legg ég til að við reynum að endurreisa þessa síðu. Það gæti auðveldað öll svona netsamskipti.
Ég veit að það verður líklega aldrei neitt ofur líflegt á svæðinu, en maður verður að reyna.
Ég hef svo sem ekki frá neinu að segja, lífið gengur sinn vanagang og ég hef svo sem sagt frá flestu á blogginu mínu.
Ég fékk fyrstu seríuna af Gilmore Girls í hendurnar í gær, er að byrja að safna þeim. Laugardagskvöldið hjá mér var síðan rólegt og þægilegt, Rabindra eldaði kjúkling handa okkur og við áttum notalega kvöldstund saman. Ég svaf út í morgun og þarf núna að læra fyrir próf sem er á morgun, þurfti bara á smá pásu að halda áður en ég held áfram.

Nú vil ég skora á ykkur allar að segja aðeins frá helginni ykkar. Eins og þið sjáið var mín frásögn afar óspennandi, en ég vil heyra hvað er í gangi hjá ykkur, sama þótt það sé ekkert sérstaklega spennandi. Ég vil heyra frá ykkur öllum og helst sem fyrst.
Bestu kveðjur frá Brimaborg.

1 Comments:

At 17 september, 2006 14:06, Blogger Una said...

Inga! Ertu að grínast! Talandi um skyldar sálir :o)

 

Skrifa ummæli

<< Home