Ekki byrjar sumarið vel hjá mér... ég mætti í vinnuna kl. 13 á þriðjudaginn en fór heim eftir tvo tíma vegna þess að ég var með gubbupest... týpískt... var svo heima allan næsta dag og er í raun ennþá að jafna mig, matarlystin er ekki komin aftur og ég borða svona að meðaltali einu sinni á dag (og ef það þýðir ekki að ég sé veik, veit ég ekki HVAÐ gerir það!). Það er dáldið af túristum í bænum, sem er fínt því að það er gaman að afgreiða þá :o) Að vísu hafa þeir þann leiða ávana að koma svona 5 mín. fyrir lokun og versla þá alveg helling! En það fer samt bráðum að vera opið lengur held ég, þá fær maður yfirvinnukaup og líka smá tilbreytingu sem fylgir öðruvísi vinnutíma :o) Jæja... sé ykkur vonandi...
Úff púff, það er föstudagurinn þrettándi!!! Var næstum því búin að gleyma því... mundi það að vísu í morgun þegar ég var að keyra í vinnuna, dauðhrædd um að keyra á svartan kött eða eitthvað álíka... Ég held samt að það gæti vel verið að þessi dagur væri einmitt svona frídagur fyrir mig, þegar allir aðrir eru óheppnir er ég bara svona mellow... ;op Þetta er samt eikkað duló dagur... í morgun þegar stelpa sem er að vinna með mér var að rífa af dagatalinu hrundi það í gólfið og eikkað... spúkí... jæja nú er ég hætt!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home