Skottur

6 á netinu!

fimmtudagur, júní 19, 2003

Hmmm... það eru nú ekki allir jafn duglegir að skrifa... Þó að ég vilji nú ekki vera að ota mínum tota þá sýnist mér ég sjálf, moi, vera einna duglegust ásamt Þórunni... Valdís kemur nú líka sterkt inn... ;op

Ég er sem sagt í Hvammi, og byrja að vinna eftir ca. 3 mín... spurning hvort maður fari að reyna að taka eikkað til, það er ekki eins og það sé brjáluð traffík í símsvörun :o) Það var lítið að gera í bókabúðinni í dag, enda heldur hver heilvita maður sig heima hjá sér í svona subbuveðri. Þeir sem ráku nefið inn voru hranalegir og dularfullir, fyrir utan að sjálfsögðu útlendingana sem eru yndi... jafnvel æææææðððiii.... úff, ég svaf yfir mig í morgun... vaknaði kl. 09:09... ekki sniðugt... var mætt í vinnuna 21 mínútu síðar.

Ég ætla kannski suður 11. - 13. júlí!!! Arrrr!!! Það er samt ekki ákveðið, ég á nú eftir að tala við Helgu og Dísu... en það er bara eitt lítið skemmtiferðaskip á laugardeginum þannig að það ætti ekki að vera mikið að gera í vinnunni. Hvað segiði? Er það road trip? ;op

Jæja, þá er best að gera eikkað af viti... bæjó pæjó!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home