Ég var að enda við að endurlesa Harry Potter and the goblet of fire (nr. 4 ef einhver skyldi ekki vita það... þó að þið eigið allar að gera það!) og ég er að DEYJA úr óþolinmæði eftir að fá Bókina (hina einu sönnu)!!!!!!!!! Veit ekki alveg hvað ég á af mér að gera núna... kannski les ég bara nr. 3, því að það eru örugglega u.þ.b. tvær vikur þangað til stundin rennur upp (af hverju pantaði ég hana ekki fyrr?!! Why?!! WHY??!!!!!)... úff púff! Og ef einhver spoilar einhverju fyrir mér um þessa bók fær sá hinn sami að kenna á reiði minni... "þú skuldar mér fé" verður barnaleikur miðað við það ;op
Svo er það Sjallinn annað kvöld stelpur mínar... The Soul of my John :o) Íha! Vúhú! Arrr! Áuw, áuw, áuw! (og nýjasta viðbótin) Hó! Hlakka hins vegar ekki til að mæta mygluð dauðans í vinnuna kl. 10 á sunnudagsmorguninn, það verður þó samt skárra að ég verð ekki sú eina....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home