Helga var ekki á Members-listanum, þannig að ég sendi henni eitt enn invitation.... furðulegt dæmi.
Ég var að byrja að vinna í dag, það var ekkert rosalega gaman. Þetta er samt ágætt. Veðrið er fínt hér, eins og alltaf. Við Ína fórum í sirkus á fimmtudaginn, Hanna er komin þannig að öll fjölskyldan er loksins saman. Annars tjáði ég mig um það á síðunni minni, ég veit bara ekki hvort nokkur skoði hana annar en Svala stöku sinnum.
Ég þarf að mæta í vinnuna alltaf klukkan hálf sjö, en ég er alltaf búinn kortér yfir þrjú, það er helsti kosturinn.
Og Una mín, þú ættir kannski bara að hætta að teikna á almannafæri, áður en vinnu félagarnir komast að öllu um þitt innra eðli.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home