Á ég að nenna að skrifa eitthvað? En það gerðist ekkert merkilegt í dag... fyrir utan það að nú halda stelpurnar sem vinna með mér að ég sé algjör perri! Á einum tímapunkti í dag, þegar það var lítið að gera, var ég eitthvað að krassa (var ekki að reyna að teikna neitt, enda veit ég betur en að vera að reyna eitthvað á því sviði... ). Þá spurði Heiða sem er að vinna með mér: "Hvað ertu að teikna?! Er þetta typpi?!" Ég neitaði þessu harðlega, en hún sagði að þetta væri alveg eins og Hófí fannst það líka. Ég sakaði þær nú bara um sorahugsunargang, en þegar ég var síðar að skoða krassið mitt sá ég við nánari skoðun að þær höfðu ekki alveg rangt fyrir sér... Just my luck... ég ætla aldrei að krassa aftur...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home