Swimming, swimming, in the swimming pool.
When days are hot (og það eru þeir), when days are cold, in the swimming pool.
Breast stroke, side stroke, fancy diving too!
Don't you wish you never had anything else to do?
Íha! Það er svo gott veður... mmmm... ég fór í sund í morgun og synti 20 ferðir = 500 metra! Og ætla mér að endurtaka leikinn á morgun (kannski nokkrar ferðir til eða frá). Svo verður að vísu að vera hlé á þessum duglegheitum mínum, þar sem að ég á aðeins eitt skipti eftir á sundkortinu mínu og á ekki pening til að kaupa nýtt fyrr en eftir mánaðamót... en þá verður þetta líka tekið með trompi!
Ohhhh, ég öfunda þig svo af bókinni Inga! Sé svo eftir því að hafa alltaf verið að lúsablesast eikkað og ekki pantað mér hana strax. Daði ætlar samt að gera það fyrir mig þannig að ég fæ hana eftir svona 3 vikur máske :o) Ohh, ég hlakka til!
Æ, mánaðamótin... þau sé ég í hillingum... veit ekki af hverju en af einhverjum orsökum finnst mér að allt verði þá betra, öllum erfiðleikum verði lokið og mín bíði ein sældartilvera... ég get farið í plokkun&litun, í klippingu jafnvel og keypt mér linsur... hætti loksins að líta út eins og frummmaður og hætti að lenda í því að heilsa fólki ekki í sundi (eins og gerðist til dæmis í morgun, þegar ég labbaði fram hjá einni samstarfskonu minni þrátt fyrir skýrt og greinilegt "Hæ" af hennar hálfu)...
Jæja, best að fara að koma sér í háttinn... vil ekki eiga það á hættu að sofna í lauginni og týna þar af leiðandi lífinu... allavega ekki á meðan ég lít ennþá út eins og frummaður... ;op

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home