OHHHH, Þórunn!!! DÍSES! Það er Bonjour, ekki bonjoir! Þú ert alveg vitavonlaus!!!!
Hehe ;op
Jæja, ég er búin að panta mér tíma í klippingu í fyrramálið... þannig að ef þið hafið einhver lokaorð að hafa um makkann, now's the time... Ég ætla að láta stytta það dáldið og fá mér styttur og svoleiðis, það kemur samt eiginlega bara í ljós í kl. 10:15 á morgun :o)
Ég fer líklega suður 25. - 27. júlí... eða vonandi allavega. Helga Auður kemur norður með foreldrum sínum nokkrum dögum fyrr og ætlar að fara með mér suður... Þórunn, ert þú enn að pæla í að koma með? Svo megið þið endilega ef þið vitið um einhvern sem vantar far suður þessa helgi gefa upp númerið mitt :o) Ég er ekki alveg búin að ákveða hvort ég ætla heim á sunnu- eða mánudegi, það kemur allt í ljós. Ætla að reyna að leggja af stað tiltölulega snemma á föstudagsmorgninum. Íha! Bæjó...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home