Ég er orðin pínu lúin núna, það er eins gott að það er að koma helgi. Ég er víst að fara í söguferð með 3. bekk á félagsfræðibraut á mán. og fæ út á það frí í skólanum. Kennararnir vilja víst hafa einhverja gaulandi vitleysinga á svæðinu. Þetta gæti orðið gaman.
föstudagur, október 31, 2003
fimmtudagur, október 30, 2003
Hey, fyrir utan Unu er engin ykkar búin að skrifa hér í meira en mánuð, og sumar ekki mun lengur en það. Hversu athyglissjúk haldiði að ég sé. Reynið að setja eitthvað hér inn, a.m.k. af og til. Þetta virkar ekki meðan ég er bara hérna ein. En ég er bara í þýskutíma núna, var í íslenskuprófi áðan. Mér fannst það gaman. Ég fékk spurninguna um þessa þrjá vonbiðla hennar Snæfríðar og skrifaði alveg helling um hvað dómkirkjupresturinn var mikið ógeð, mér var ekki vel við hann. Hann var bara viðbjóðslegur.
Ég held mér hafi gengið bara ágætlega.
þriðjudagur, október 28, 2003
Mér er farið að líða eins og ég sé ein með þetta. Ég á mína eigin síðu, ég þarf ekki tvær. Hin síðan er staðurinn fyrir einræðurnar mínar. Vitið þið af hverju það stendur hérna '6 á netinu'. Það eru sérstaklega tveir aðilar sem þurfa áminningu. piff. Þetta er erfitt, en ég reyni að minnsta kosti að halda einhverju lífi í þessu. En eðli þessarar síðu er þannig að ég get ekki haldið þessu uppi ein...
I'm lonely, help me out, here!!!
Endilega, þið hafið allar nægan tíma fyrir tuð, ég þekki ykkur. Ef það er erfitt að koma því fyrir, komið því samt fyrir.
mánudagur, október 27, 2003
Á laugardagskvöldið fengum við Tedda og Fjólu til að koma og hafa smá útileik. Stelpurnar höfðu verið að tala um hvað gluggarnir niðri væru óhugnalegir á kvöldin, þannig að við báðum þau að koma að banka á þá. Þeim brá svo hræðilega mikið og öskruðu úr sér lungun, greyin.
Annars var gaman um helgina, fyrir utan að hendurnar á mér voru svartar alla helgina...
En það var ekkert sem góð sturta í gær lagaði ekki.
föstudagur, október 24, 2003
Ég ætla að fara í útilegu í kvöld, komið í heimsókn á laugardaginn... það gæti orðið gaman.
Ég hef ekki farið í útilegu síðan í fyrsta bekk, held ég. En ég er algert nörd, sannaði það með því að fara í stærðfræðikeppni svona til að byrja með. Og við erum byrjuð á árshátíðarstykkinu okkar í kórnum, algert hernaðarleyndarmál. Það gæti orðið mjög flott, ef við náum að flytja það nógu vel.
fimmtudagur, október 23, 2003
Loksins, ég er ekki lengur ein hérna.
Una, við verðum bara að halda þessu uppi, það er ekkert annað hægt.
Ég er nú að fara í útilegu í helgina, það verður gaman. Ég er núna í ensku, get ekki skrifað mikið. Ég skrifa meira síðar.
En komið nú, ekki vera aumingjar. Verðum við Una bara að halda uppi heiðri ykkar?
mánudagur, október 20, 2003
Ég held bara að málið sé að þær séu ekki nógu mikil tölvunörd... það geta ekki allir verið gúrúar eins og ég, en come on stelpur, óþarfi að vera fúll út af því! ;op En ég er hlynnt öllum lífgunartilraunum á þessu bloggi, tvímælalaust!
Heyriði nú!!!
Ég á ekki nægilega áhugavert líf til að halda þessari síðu uppi, þið verðir að hjálpa mér í þessu.
Ég sit í þýskutíma, að fjalla um 'Das Lager'. Það er ágætis bók, ef bók má kalla.
Ég nenni varla að vera hér, við vorum að koma úr leikfimi og mig langar til að gera eitthvað skemmtilegt núna, þess vegna er ég einmitt að skrifa á þessasíðu, í staðinn fyrir að fylgjast með.
Ég þarf núna að fara að þykjast gera eitthvað af viti. Farið nú að skrifa eitthvað inn á þessa síðu.
laugardagur, október 11, 2003
Hvað á þetta að þýða, á þessi síða alveg að deyja. Og þið sem notuðuð netleysi sem afsökun í sumar og ætluðuð að byrja aftur þegar skólinn byrjaði, hafa enn ekki komið með neitt. piff. Ég veit að ég hef verið pínu löt, en ég ætla að reyna að breyta því í framtíðinni. Ég þarf samt að fara núna.
Auf Wiedersehen.
