Skottur

6 á netinu!

mánudagur, júlí 16, 2007

Nýr mánuður, ný færsla

Ég ákvað að smá lífi þyrfti að blása í þessa blessuðu síðu... það hefur ekkert gerst síðan í færslunni okkar Unu nú í byrjun júní.
Annars var ég á ættarmóti í Skagafirði um helgina og skemmti mér konunglega. Ég var samt að telja og komst að því að ég á bara fjórar helgar eftir. Þar af verð ég á Húsavík eina (um mærudaga) og síðan er verslunarmannahelgin, en þá var ég að hugsa um að vera norður á Akureyri. Nema þið hafið allar ákveðið að fara til Eyja eða eitthvað, þá væri það kannski ekki gáfulegasti kosturinn. Því var ég að velta því fyrir mér hvernig hlutirnir litu út fyrir ykkur það sem eftir er sumars.

2 Comments:

At 16 júlí, 2007 16:49, Blogger Una said...

Hey hó við Valdís verðum í Englandi um versló, á Alheimsmóti skáta :o) Tókum skyndiákvörðun um daginn og verðum þar í eina viku, 2.-9. ágúst!

 
At 17 júlí, 2007 10:20, Blogger Inga said...

Já, ég vissi að þið væruð að fara á mótið en vissi ekki að það væri þessa helgi.

Annars kíkti ég hérna inn til að sjá hvort einhver hefði séð og kommentað á færsluna mína. Þegar ég sá að það var ein athugasemd komin þurfti ég ekki að kíkja til að sjá hver það hefði verið.

 

Skrifa ummæli

<< Home