9. febrúar 2007

Í dag er vert að fagna því að þessi yndislega stúlka, Helga Valborg Steinarsdóttir, hefur náð 22 ára aldri. Til hamingju, með það gamla!
Og þá er það minning. Ég geri mér grein fyrir því að hún hefur komið fram áður, en só sorrý, þetta er bara besta Helgu-afmælistengda minningin! Jebb, það er rétt... minningin er þegar ég kom linsulaus í afmælið and history was made. Frasar eins og "afsakaðu ljótu peysuna sem ég er í," "sjáðu flottu sokkana mína" og "hvar eru gúrkurnar" munu lifa í hjörtum okkar alla tíð. Lifa lengur en skálarnar 5 sem mættu þarna örlögum sínum...
Til að bæta upp fyrir að endurnýta þarna minningu kem ég með aðra: þegar við fórum beint af Morfískeppni í afmæli til Helgu og Unnar og neituðum að segja þeim úrslitin... því þau voru skrifuð inn í afmæliskortin! (ógeðslega fyndnar)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home