Þvílíkt framtaksleysi!
Þið eruð nú meiri ræflarnir! Ekki nóg með það að þið skrifið ekki færslur heldur kommentið þið ekki heldur! Þórunn er mesti ræfillinn... loooooser! (Una)
Una er duglegust. Hún er sú eina sem svarar öllum færslum frá mér. (Inga)
Öllum færslum frá ÖLLUM. (Una)
Það er kannski ekki að furða, þar sem að bloggin ykkar hafa heldur ekki verið mjög virk undanfarið (síðasta færsla hjá Þórunni heitir "nu er det julen igen"). Kominn tími á nýtt efni! (Inga)
Við Inga sitjum hér í Ásgarði í góðum fíling. Elduðum dýrindis máltíð... átum á okkur gat og leið eins og sönnum Skottum! Svo horfðum við á Spiderman 3, get ekki sagt að ég mæli með henni. Í dag dró ég hana með mér í skátaheimilið að hjálpa til við póstaleik. Getiði hvað við erum að fara að gera í fyrramálið? Fara í skátaheimilið að hjálpa til við póstaleik hehe ;o) (Una)
Það var samt æðislegt að koma inn í skátaheimilið. Ég hef ekki komið þangað síðan við fórum í forsetamerkið, góðar minningar (átti ekki minning að fylgja hverri færslu?) (Inga)
Jújú Inga, það er rétt. Forsetamerkið er afar góð minning. Muniði hvað við vorum pirraðar þegar konan truflaði samtal okkar við Jóhann Gunnar. Kona sem nú gegnir miklu virðingarembætti. (Una)
Oh, hún var svo pirrandi. En að minnsta kosti sáum við holuna hans Jóns Hreggviðssonar. Og baðið var æði! (Inga)
Jæja, kannski kominn tími á að slútta þessu. Mun hvort eð er enginn kommenta á þetta nema ég og kannski Inga! How sad. (Una)
True true, en hvað getur maður gert? (Inga)
Góða nótt.

5 Comments:
Flott blogg hjá ykkur stelpur. Gott framtak, þið eruð æðislegar!
Sammála síðasta ræðumanni.
Æðislegt að sjá smá líf aftur á síðunni.
hei, ég er EKKI loooooooooser! snufsisnufs! Eftir 3 daga verð ég komin heim á Íslandið góða! já, nánar tiltekið Seyðisfjarðar...hvernig ég á svo eftir að koma mér og Victori heim til Akureyrar er spurning...ætli við húkkum okkur ekki bara far :o)
hei, nú var ég dugleg!
Stå på!
22 tímar og bara Þórunn búin að kommenta (ekki að það sé neitt 'bara', æðislegt að heyra í þér).
Við bíðum enn eftir lífsmarki frá ykkur hinum.
Ég er hér líka! Og ég var að lesa færslur sem ég átti eftir að lesa og ég var búin að gleyma því að við hefðum skrifað einhver morfísúrslit í kortin :S svo man ég heldur ekki eftir neinni holu og baði?!! og hvaða embætti gegnir þessi kona nú? vitum við hvað hún heitir? En gott framtak :)
Skrifa ummæli
<< Home