Skottur

6 á netinu!

mánudagur, janúar 26, 2004

Ég er hérna, ég er hérna!!! Ég er bara svo yfir mig uppveðruð af tilhlökkun fyrir bústaðarferðina að ég bókstaflega er ekki fær um að setja hugsanir mínar í orð!

Til gamans má geta að Jóhönnu Lan tókst að bregða mér... hún sem sagt tosaði í handfangið á tölvustólnum sem lækkar hann og ég pompaði niður og rak upp gól og fórnaði höndum...

Allavega, læt heyra í mér hérna aftur sweeties :o)

Inga, við erum eikkað tvær hérna... hefuru tekið eftir því? Una þóttisy ætla að vera með en það var greinlilega allt í plati...

sunnudagur, janúar 25, 2004

Það hljómar vel. Ég tek þá með mér einhver spariföt, ég þarf að pakka niður núna. Skemmtið ykkur vel í vikunni. Við sjáumst á miðvikudaginn. Og ég gerði nú bara ráð fyrir að nammi væri innifalið í ferðinni, datt ekki annað í hug.

föstudagur, janúar 23, 2004

Við Una vorum að tala um það að það yrði gaman ef við myndin prófa að hafa einhvern fínan mat.. og allar vera í svona fínni fötum og hafa allt geðveikt kósí :) Ekki elda bara pizzu :) Þó það virki svo sem líka... :) Við vorum að láta okkur dreyma um lambakjöt... eða eikkað svoleiðis:) Við þurfum svo sem ekkert að ákveða það núna.. en gaman að hafa ekki alltaf það sama... :) Svo er það líka nammið:)

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Ég held það, ég treysti okkur ekki nógu vel. en á þessum degi, eftir viku, verðum við í bústaðnum. Það er hægt að vinna aukakílóin af sér síðar og ég ætla mér ekkert að pæla í því. Það verður gott að fá góðan mat og geta eitt tímanum í eitthvað skemmtilegt og hafa jafnvel efni á að eyða honum í ekki neitt. Og mig sárvantar að umgangast vini mína. Ég get varla beðið lengur.

Já, það er slæmt að gleyma svona lykilatriði... væri ekki betra að búa til ís þegar við höfum 10 - 11 í næsta nágrenni opið allan sóalrhringinn?? Mér yrði óneitanlega rórra... að vita að við gætum reddað hlutunum ef allt stefnir í óefni... :)
Og ef það verður ekki súkkulaði þá getum við altt eins sleppt því að fara :)

miðvikudagur, janúar 21, 2004

Ég held ég vilji ekki vita...
En ég fattaði ekki þetta með að búa til ís, þ.e.a.s. ég hugsaði ekki út í það að þetta verðum við. Það er kannski best að endurhugsa þetta að einhverju leyti. En ég mæli með því að það verði einhver ís... það er jafn nauðsynlegt og eitthvað sem inniheldur súkkulaði.

Bettý er kynlífsþrællinn hennar Unu ;P
oh jæja. gleymdessu:) ohh það er svo endalaust ljúft að það sé bara eitt próf eftir og það meira að segja enska... (ekki vaninn að ég sé að segja þetta... ) Og svo verður bara sukk og svínarí á miðvikudaginn til föstudaginn... (eikkað er þetta ekki alveg rétt íslenska:) En mér gæti ekki verið meira sama þar sem ég er búin með íslenskuprófið :) sjibbí:) jamm, en Inga, er ekki eikkað bras að fara að búa til ís sjálfar og er það ekki líka pínu riskí bissness ef við klúðrum hlutunum... verðum við ekki að hafa eikkað bakkupp???? hvað gerum við ef ísinn mistekst??? og við eigum kannski engan ís??? ég er of ung til að deyja....
or somthing...

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Vá, ég kíkti hérna inn til að reyna að endurvekja síðuna, svona í tilefni af sumarbústaðsferðinni. Ég hélt að síðan væri alveg dauð. En það er gott að sjá að hún er það ekki. Það verður svo gaman í ferðinni. Ég var að finna nokkrar uppskriftir sem ég ætla að koma með í skólann á morgun, ef okkur langar til að vesenast eitthvað. Flestar innihalda þær rjómaís og/eða súkkulaði. Maður má nú alveg leyfa sér eitthvað gott svona rétt eftir prófin.
Og betty? Ég held ég sé að missa af einhverju...

sunnudagur, janúar 18, 2004

Bettý getur náttla verið í skottinu, enda ýmsu vanur...

Hæhæ, ég er ekki búin að koma inn á þessa síðu síðan í sumar vegan þess að ég hélt í ljósi þess að allir eiga sína eigin bloggsíðu, þá myndi enginn skrifa hér lengur... en ég hafði rangt fyrir mér og nú er ég tilbúin að byrja á ný á fullum krafti :) hvað segiði... vika í sumarbústað:) er það betty... ? ég held að það sé ekki seinna vænna en að fara að skipuleggja svona mikilvæg atriði í sambandi við þetta :) svo má hitt sem er annað mál sitja á hakanum eins og nákvæmar tímasetningar og svona sem er kannski ekki eins naugið :)
bæjó:)