Skottur

6 á netinu!

laugardagur, september 30, 2006

...og ég!

Ég á við sama vandamál að stríða og Valdís... eeeen mér er ferskt í minni annað kvöldið á Krít (held ég að það hafi verið) þegar ég, Una, Valdís og Helga fundum þennan fína kokteilabar sem seldi heimsins sterkustu (og verstu) margaritur. Einhverniveginn (af hverju?!?!) datt okkur í hug að fá okkur svoleiðis og jeij, það var gaman! Þegar við komum heim lugum við svo að Ingu og Unni að Helga væri full... hihi...og þær trúðu því! óóóó...
Ég er rosalega léleg í þessum endurminningum (eins og þið sjáið) og þetta er örugglega ekki allt (þó stutt sé) rétt... :o)

En ég reyndi...

4 Comments:

At 30 september, 2006 20:17, Blogger Una said...

Ó Guð, þetta kvöld! Ég man líka morguninn eftir þegar við þrjár ætluðum galvaskar með Helgu, Ingu og Unni á markað eins og við höfðum lofað... tókum taxa niður í bæ og svo strax til baka því margaríturnar vildu komast í snertingu við dagsljósið á ný...

 
At 01 október, 2006 09:34, Blogger Valdís Ösp said...

Hahah, ég man líka eftir þessu, og okkur fannst þessar margarítur ógeðslegar, ég gat ekki hugsað mér að klára mína, við keyptum smirnoff til að bragðið yrði ekki svona sterkt! en ojbara, þið svelgduð eiginlega öllum drykknum ofan í ykkur ;) ég segji bara guði sé lof að ég hafi ekki drukkið meira, hefði ekki boðið í daginn eftir með meira af þessu í líkamanum! og það er nú þannig í að dag ég, þegar ég skrifa þessi orð fæ alveg klígju og það myndi ekkert í alheiminum fá mig til að drekka tekíla! en var þetta ekki einmitt kvöldið sem að Una fóra að stunda götuhreinsunina?

 
At 01 október, 2006 16:31, Blogger Una said...

Jújú, og ef ég man rétt var það einmitt Andrea sem fékk mig til að sleikja bjórinn upp... fallegt af henni...

 
At 01 október, 2006 21:29, Blogger Valdís Ösp said...

já, og jafnvel enn fallgra af þér að gera það fyrir fólkið sem starfaði á hótelinu :) En hvar eru Inga og Helga?

 

Skrifa ummæli

<< Home