Jólin, já ég sagði jólin!
Hey görls!
Ég er að fara til New York á fimmtudaginn, liggaliggalái!
En ég er nú ekki (bara) að skrifa þetta til að monta mig. Ég hef nefnilega hugsað mér að reyna að versla jólagjafir þarna í útlandinu og auðvitað eruð þið í top 10 á jólagjafalistanum! Þannig að, ég væri vinsamlegast til í að þið gæfuð mér einhverja hugmynd um efnisleg gæði sem myndu gera jólin ykkar fullkomin, því ég sætti mig ekki við neitt annað en hina fullkomnu jólagjöf! (Jólaandi hvað?) Ef einhver treystir sér alls alls ekki til þess að gefa eitthvað upp, sem ég er nánast viss um, sætti ég mig við vil-alls-ekki-fá-lista, svo ég geti allavega beitt útilokunaraðferðinni.
Plís stelpur.
Og já, minning... hmmm. Muniði þegar við vorum að labba úr Fálkafelli eftir útilegu og djúsbrúsinn rann af stað. Þrátt fyrir að sumir hafi gert hetjulega tilraun til að bjarga honum hvarf hann og hefur enn ekki fundist!
Ást frá mér til ykkar yfir sjó og land.
