Arrrrrrrrrr!!! Söguprófið búið... ÍHAAAAAAAAAA!!!!!!!! Þvílík gleði og sæla :o) Mér gekk bara vel vona ég, ég fór í einhvern trans... bara muna muna skrifa skrifa... ææææðððiiii.... Þá er það bara féló á mánudaginn, sem er að vísu dáldið að lesa, en EKKERT miðað við söguna! Og hvað á maður að gera þegar prófin eru búin... hmmm... kemur í ljós með tíð og tíma...
föstudagur, maí 30, 2003
Góðan daginn stúlkur.....ég hef nú ekki lesið þetta lengi....þar sem ég hef verið mjög svo "upptekin" við að "læra" fyrir próf ;o) en allavegana þá sá ég að það voru sumir að gera grín að því að mér þætti Birgitta Haukdal alveg "æði"........en ég vona nú að þær manneskjur þekki mig það vel að þær ættu að vita að ég er nú ekkert sérstakt Haukdal fan.....eins og meirihluti þjóðarinnar virðist vera um þessar mundir!!!!.....kannski ég ætti að fara að læra undir próf....líffræðipróf....sem verður dauðans erfitt held ég.....allavegana er dauðans mikið efni........mér sýnist þetta bara stefna í að vera alveg dauðans helgi!!!! en jæja.....best að skella sökkva sér í frumufræðina......
fimmtudagur, maí 29, 2003
miðvikudagur, maí 28, 2003
Loksins, smá hvíld. Eftir þrjú próf í röð!!! En þessu líkur nú fljótlega, sem betur fer.
Mér fannst frekar furðulegt að rússnesku stelpurnar skyldu ná svona hátt í Eurovision. Lagið var fínt en það bara stóð ekki upp úr sem Eurovision lag. Ætli frægðin og orðrómurinn um að þær hafi ætlað að gera eitthvað hneyksli hafi ekki orsakað þetta.
En nú ætla ég að halda áfram í afslöppuninni, læri í kvöld.
þriðjudagur, maí 27, 2003
Úff púff... búin að vera að lesa dönsku eins og (ritskoðað)!!! Er nú mikils vísari um "Islands natteliv i udbrud" að ekki sé minnst á þá tilhneiginu danskra ungmenna til að taka sér frí í frá námi í nokkur ár eftir stúdentspróf... hmmm... afar gagnlegt. Fékk þar að auki mikinn siðferðislegan boðskap í gegnum "Svinedrengen"... það borgar sig greinilega ekki að vera grunnhygginn...
Birgitta er ágæt :o)
Þórunn mín, en man nú eftir því að hafa þurft að tala þig til um það hvað það væri fínt að Birgitta Haukdal færi fyrir hönd Íslands :o)
sunnudagur, maí 25, 2003
Sammála með prófin Tóta mín!!! Ég hreinlega NENNI ekki að vera að fara í próf... og þá sérstaklega sögupróf á föstudaginn... DAUÐI OG DJÖFULL, við erum að tala um 300 bls. hérna!!! En hvað var samt málið með Eurovision?!!! Tyrkland?!!! Halló halló... En þið hafið væntanlega tekið eftir því að Noregur og Ísland gáfu hvort öðru 12 stig... sýnir best af öllu hvað svona norræn skólaskipti eru góð til að koma á vináttu á milli þjóða ;op Jæja, líkindareikningur here I come...
Ég horfði á Eurvision í gær, ég er nokkuð sátt. Ég bjóst ekki við að Ísland myndi lenda í topp 5 þannig að þetta var fínasti árangur.
En nú þarf ég að fara aftur að læra, próf á morgun.
laugardagur, maí 24, 2003
oooooooooooh!!!! ég HATA próf.....og sérstaklega stæ próf!!!!! það er reyndar gaman að læra þegar maður skilur allt......en þar sem að þetta er stæ...........þá er það ekkert gaman!!! en allavegana....ég þurfti bara aðeins að tjá mig :o) og svo er það bara eurovision.....wooohoooooo.........ég dýrka Birgittu Haukdal ;o)

Water Goddess. You like peace and serenity and are
usually content with life.
What element would you rein over? (For Girls)
brought to you by Quizilla
fimmtudagur, maí 22, 2003

Goddess of the Moon. Beauty, yet a sadness lurks
about you at times. But hey, pain is beauty,
right?
What element would you rein over? (For Girls)
brought to you by Quizilla
Jæja, eins gott að ég varð ekki einhver fjandans eldhúsgyðja eins og hér í den.... :o)

Goddess of winter, with a cold exterior but deep
down a warm, caring heart.
What element would you rein over? (For Girls)
brought to you by Quizilla
Ég hef allt of mikið að gera í skólanum.
Þessi próf eru ágætis afþreying.
miðvikudagur, maí 21, 2003

I am a chubby little kitten blob
Which cute or possibly strange kitten are you?
brought to you by Quizilla
Hmmm... ég er feitur KISI, ekki KUSA eins og ég hélt...
.....en Una mín.......þú keyrðir ekkert "pínu" á gangstéttina......allavegana miðað við hljóðið sem kom og hve langt þú keyrðir upp á gangstéttina......þá var þetta nú ekkert pínu.........ég mundi nú halda að lakkið hafi skrapast af öllu horninu þar sem þú rakst hann niður í......en..........
Tilkynning, tilkynning!!!!
Ég er komin með kærasta eftir langa og harða baráttu.....hann heitir Róbert Lee Evensen (kallaður Bobbý)......er þetta nógu gott fyrir ykkur !?!
Nú eru allir komnir inn. Eftir mikið bras. Loksins!!!
Nú er kannski hægt að ráða bót á upplýsingastreymisvandamálinu sem virðist ríkja *hóst*Þórunn *hóst*
Hvað á það að þýða að segja manni ekki svona stórfréttir heldur heyrir maður það sem slúður frá einhverju öðru fólki. Piff.
Það er að minnsta kosti hægt að setja tilkynningu á netið.
Núna getum við loksins farið að tjá okkur þegar hinar eru ekki nálægt.
Björgum óflekkuðum sálum fólksins í kringum okkur (þó að slíkt sé erfitt að finna).
Og verið nú duglegar að tjá ykkur.
...still the prettiest...
I did it... Have delivered smackdown... Go me!
I'm in, I'm in, Im soooooooooooooooo in!
Og já, þið megið allar fá íslenskuglósurnar mínar ef þið bara viljið, á ég ekki bara að taka prófið fyrir ykkur líka? Nei, ég skil þetta hvimleiða vandamál ykkar, stærðfræðikennslan sem ég fékk í 103 var ekki upp á marga fiska og ég hefði drepið mann og annan fyrir glósurnar frá Einari. Hey, annars, Þórunn, af hverju ertu ekki búin að posta nýjusta og allra heitustu fréttina? SEM ÉG FÉKK FRÁ BRYNDÍSI INNI Á SNYRTINGU Í SKÓLANUM, ÞRIÐJUDAGINN 20. MAÍ 2003, ÞEGAR ÞIÐ HÖFÐUÐ VERIÐ SAMAN Í A.M.K. 2 SÓLARHRINGA! Piff, þetta þykir mér ómerkilegt, þó ég hafi verið í Reykjavík þá á ég síma, HALLÓ! Ok, þegar ég gifti mig þá færð þú ekki að vita af því fyrr en ég er skilin aftur!
þriðjudagur, maí 20, 2003
Gleði, gleði, sæla, sæla! Eftir blóð, svita og tár hefur mér loksins tekist að komast inn á þessa !"##$%&&/( síðu... nei ég segi nú bara svona... En það er gaman að segja frá því að þegar ég var að brasast í þessu og fékk bara error á error ofan kallaði ég í neyð minni á bróður minn, tölvugúrúinn (eða nördið, what ever) til að hjálpa mér að koma þessu í gagnið. Eftir að ég var búin að setja hann inn í málið og hann búinn að brasast aðeins í þessu kom í ljós að þetta var ekki !""#$#$%&& tölvunni að kenna (eins og ég hafði áður sett fram kenningu um) heldur þurfti undrabarnið Una bara að ýta á "send" takkann með músinni í staðinn fyrir að ýta á enter... hmmm... ætli ég hafi fengið lookið og hann... tja...
Það er líka gaman að segja frá því... eða, nei það er ekki gaman að segja frá því en eflaust gaman að heyra það... að í dag sýndi ég það enn og sannaði að ég er algjörlega MISHEPPNUÐ! Ég var semsagt að fara heim úr skólanum um fjögurleytið í dag og ætlaði að skutla Þórunni heim í leiðinni. Þar sem að ég var að fara í mundlig eksamen i dansk síðar um daginn úr Gravskrift for Rödhætte (hata danskt ö) var Tóta að tala við mig á dönsku um bókina. Það er greinilega of mikið fyrir minn litla heila (vísa hér í fyrri kenningu um skiptingu hæfileika í fjölskyldunni) að keyra, tala dönsku og rifja upp bókina í einu. Ég byrjaði á því að beygja til hægri þegar ég kom af MA planinu í staðinn fyrir vinstri. Ég lét það þó ekki draga úr mér kjark (eins og ég HEFÐI ÁTT AÐ GERA) og tók þá ákvörðun að taka U beygju á ljósunum rétt hjá skólanum. En þegar að því kom (tek það fram að ég var ennþá að tala dönsku) náði ég ekki að beygja almennilega og keyrði pínu upp á gangstéttina. Ég þurfti að bakka og vesenast til að komast áfram og á meðan á því stóð kom grænt ljós á hina en þeir þurftu að gera svo vel að bíða á meðan kálhausinn ég (já, Helga, ég sagði KÁLHAUS!) reddaði málum! Ég hef sjaldan skammast mín eins mikið, og þá tel ég með fallið í Kvosinni!!!!!!
