Helú... gaman að sjá að Inga er aftur á meðal oss :o) VÁ, ég öfunda þig dauðans af Harry!!!! Mig langar SVO í hana!!! Ef ég hefði verið fyrir sunnan um helgina, gæti vel verið að ég hefði tjaldað fyrir utan Mál og Menningu í skikkju og með galdrasprota... eða, nei, segi það nú kannski ekki ;op Ég skal eignast þessa bók, það er pottþétt!!! Hún er ekki komin í búðina til okkar ennþá, og ekkert víst að við fáum hana í bráð :o(
Ég er búin að vera að brillera í frönsku í dag! Seldi þrjár peysur og slatta af bolum, allt frönskukunnáttunni að þakka ;op Nei, þetta var nú svo sem engin eðalfranska og ég skildi svona fjórða hvert orð sem kúnnarnir sögðu, en þetta reddaðist einhvern veginn og maður lifandi hvað það gleður fólkið að heyra einhvern tala frönsku!!! Ég veit nú ekki hvort ég yrði svona glöð ef einhver myndi ávarpa mig á íslensku í búð erlendis... vissulega yrði ég undrandi, en myndi nú kannski ekki hoppa upp og klappa saman lófunum og brosa hringinn... Við erum með geðveikt krúttlegar lopapeysur á börn, allt niður í tveggja ára, ég sé nú bara Jóhönnu Lan í anda! En þær kosta að sjálfsögðu morð fjár... þó ekki jafn mikið og fullorðinspeysurnar, ég veit ekki, kannski er það bara ég en mér finnst geðveiki að kaupa peysu á 10.280 kr... líklega er ég ekki nógu mikill túristi í mér...
Síjúleiter :o)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home