Skottur

6 á netinu!

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Afrek dagsins: ég braut ostaskera sem hefur verið í eigu fjölskyldu minnar frá því áður en ég fæddist... við erum sem sagt að tala um að móðir mín hefur þekkt hann lengur en mig... hún tók þessu nú samt með jafnaðargeði, en kannski var það bara á yfirborðinu... ef einhver vill vita hvernig ég fór að þessu, þá var ég að nota hann sem hníf til að skera ostasamlokuna mína í tvennt... hmmm...

Ég er nokkuð viss um að fara á föstudagsmorgninum (ef ég fer yfirleitt, 7,9,13) en þetta með mánudaginn eru bara pælingar og vangaveltur... fyrst ég er hvort sem er að taka mér frí er kannski betra að njóta þess aðeins :o) Vonandi fæ ég einhvern annan með (7,9,13) en annars mun ég líklega keyra ein norður... ef ég fer á sunnudeginum get ég þó verið í samfloti með mömmu og Hjalta. En þið hafið eyrun opin fyrir mig, er það ekki? ;op

Ég er búin að fara í klippingu og er mjög ánægð :o) Helga er búin að sjá þetta, þið hinar verðið bara að finna mig í fjöru, eða fá ykkur líka vinnu í miðbænum ;op (að þér undanskilinni, Inga :o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home