Ahhh... Home sweet home... :o)
Ég er komin aftur norður í sólina og sæluna (fór að vísu úr sól og sælu í Drangshlíðardal) :o) Það er ótrúlegt að þessir fimm dagar sem ég var í fríi séu liðnir, þetta bókstaflega flaug hjá! Enda var þetta alveg geggjuð ferð og hverrar krónu virði :o) Ég þræddi útsölurnar í Smáralind og Kringlunni, en verslaði ekkert brjálað mikið. Keypti mér sólgleraugu á 995 kr. í Ice In a Bucket, dáldið af sokkum í Sock Shop (2 fyrir 1) og loks skó í Intersport á hálfvirði, kostuðu bara rúman 2000 kall! Og hvernig haldiði að þeir séu á litinn? Neeeiii, ekki fjólubláir, heldur... vínrauðir! Hmmm... mér líkt ;op Svo fórum við Helga Auður austur undir Eyjafjöll á föstudaginn og hófum Reunion 2003 ;op Við þremenningarnir þræddum gamlar slóðir, borðuðum til dæmis nesti á tröppum gamla skólans okkar (sem var einnig heimili mitt), sem hýsir núna gistiaðstöðu fyrir ferðamenn. Svo hitti maður ýmsa gamla "drauga" úr fortíðinni, þó að maður hafi nú ekki kannast við þá alla við fyrstu sýn ;op Við blöðruðum allar nætur, sem var ef til vill dáldið slæmt fyrir hana Dísu, sem þurfti að mæta í vinnu á morgnana (sorrý Dísa mín :o). Svo fórum við með henni í vinnuna í gærkvöldi (hún vinnur í bændagistingu) og hjálpuðum til við að bera fram matinn og svoleiðis, á launum meira að segja! Nú bíður maður bara eftir Reunion 2004, sem fer máske fram á Akureyri!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home