Ohh, það hlýtur að vera gaman að vera brúnn... ef ég bara gæti upplifað þá tilfinningu... ;op Jæja, það var nú aldeilis skemmtilegur dagur hjá mér í gær! Ég byrjaði hann á því að fara í vinnuna og var búin tveim tímum fyrr, því að það var svo lítið að gera. Þá fór ég bara heim og "tjillaði" aðeins, og fór svo og sótti Helgu Valborgu, því við ætluðum að fara í Bónus að versla efni í Brownies (sem eru gómsætar, sérstaklega með ís!!!). Svo fórum við heim til mín og bökuðum og elduðum okkur svo kjúklinga fajitas, og borðuðum og töluðum og borðuðum og töluðum og borðuðum svo brownies og horfðum á Bridget Jones :o) VÁ, hvað ég elska Darcy!!! Sama hvor þeirra það er, elska þá báða! Svo skutlaði ég Helgu heim til sín (eftir að hafa reynt að tala hana út í það að koma í Sjallann með okkur...) og fór svo í Sjallann, og það var GEÐVEIKT GAMAN, enda Sálin að spila :o) Svo fór ég í sund með Tótu í dag... og borgaði með skólakortinu mínu... og ég er viss um að það var sama kellingin sem var að afgreiða mig og ætlaði að bíta af mér hausinn síðasta sumar þegar ég ætlaði að borga með því! Hún skoðaði það geðveikt vel og sagði: "Það er nú spurning hvort að þetta sé komið í gildi..." Ég sagði henni nú að það væri í gildi eftir 15. ágúst, eins og stóð á verðlista sem hékk við hliðina á henni og eins og hún hvæsti á mig hér í den. Þá sagði hún: "En er búið að setja skólann hjá þér?" Belja. Ég fékk nú samt að borga með því...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home