Ég er nú ekkert rosa brún, bara brúnni en vanalega. Ég fór í gær á vatnaskíði, ekki íþrótt sem ég er góð í (kemur á óvart) og í dag fór ég í mini-golf, það var aðeins skárra.
En þetta var alveg hræðilegt með vatnaskíðin. Fyrsta tilraun var þannig að ég ætlaði ekki að detta fram fyrir mig, þannig að þegar ég fór af stað datt ég aftur fyrir mig. Þegar ég datt og missti skíðin fattaði ég ekki að sleppa... afar heimskulegt. Þannig að ég fór aðeins áfram en áttaði mig svo. Síðan þurfti ég að finna skíðin (þau detta af um leið og maður dettur). Þá sá ég annað og synti að því. Svo kom upp vandamál. Ég var nefnilega ekki með linsur og sá ekki hvar hitt skíðið var. Þannig að ég bara svamlaði um í nokkurn tíma og leitaði og þegar ég loksins sá skíðið var búið að senda einhvern út til að synda eftir því, afar vandræðalegt. Síðan fór ég nokkrar ferðir, engin var alveg eins slæm, en í einni datt ég (eins og alltaf), missti skíðin og fékk svo annað þeirra í hausinn og er nú með kúlu á höfðinu...
Þetta er ekkert fyrir mig, þetta var samt ágætt. Ef við förum þangað aftur fer ég örugglega samt á skíði.
Síðan er ég búin að panta flug og kem til Íslands laugardaginn 6. sept. og kemst norður samdægurs.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home