Skottur

6 á netinu!

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

Hæ, ég heiti Una og ég er AULI.

Ég hringdi um daginn (máske á mánudaginn, man ekki) og pantaði mér tíma á verkstæði (Höldur) til að gera við jafnvægisstengur í bílnum mínum, því þegar ég fór með gripinn í skoðun kom í ljós að þær voru meira og minna ekki festar (aðallega meira). Ég fékk tíma kl. 10 á miðvikudaginn (sem sagt, í morgun). Ég taldi það nú ekki mikið mál og ætlaði bara að fara með bílinn kvöldinu áður og láta mömmu sækja mig. En, nei, svo bara steingleymi ég því og vakna upp í panikki í nótt þegar ég man eftir tilvist þessa pantaða tíma... Mamma gat ekki aðstoðað mig í morgun vegna anna, þannig að ég ákvað bara að vera snemma í því og keyra bílinn á verkstæðið og labba svo í vinnuna (átti að mæta 9), enda GLERÁRTORG tiltölulega nálægt vinnustað mínum. Svo þegar ég kem þarna að og sé skiltið: "Höldur, hjólbarðaverkstæði", átta ég mig þegar í stað á því að ég er greinilega að klikka í hausnum. Átti nebbla pantaðan tíma á bifreiðaverkstæðinu, ekki hjólbarðaverkstæðinu! Og bifreiðaverkstæðið er í Draupnisgötu, eins langt upp í þorpi og hægt er að vera! Panikk, panikk, panikk! Keyri þangað (panikk) og skil bílinn eftir (panikk). Geng að götunni (panikk) og sé þá strætóskýli (hef ekki tekið strætó í langan, langan tíma). Róast aðeins niður og lít á áætlunina. Jú, jú þarna gengur strætó niður í bæ. Ætla að líta á klukkuna á símanum en þá (panikk!) fatta ég að sökum þess að ég missti hann í gólfið á mánudaginn og mölvaði skjáinn eru myndgæðin vægast sagt óásættanleg. Maður sér bara pínu efst í vinstra horninu og enn minna neðst í því hægra. Bíð þarna eins og illa gerður hlutur í nokkrar mínútur... og hvað sé ég? Glæsilega SVA bifreiðina koma svífandi! Gleði og sæla fyllir mig og ég stíg um borð, (er ég með klink? Panikk! Húff, eins gott!) borga og brosi mínu blíðasta til bílstjórans sem er eflaust grunlaus um atburði morguns míns... og það væri heldur betur spúkí ef hann væri það ekki... Svo sat ég í strætó í 20 mínútur, því að hann fór lengsta hring sem hægt er að fara, en náði niður í bæ rétt fyrir vinnu :o) Það á samt að banna svona stress svona snemma morguns...

En já, mér tókst að brjóta skjáinn á símanum mínum endanlega! Kemur í ljós að íslenskt parket er alveg jafn hart af sér og það norska... ef ekki harðara, því eins og glöggir menn muna þá brotnaði bara oggupoggu neðst á skjánum í Norge, og kom það ekki í veg fyrir notkun símans, jafnt hringingar sem sms. Viðgerð á símanum kostar 7000 kr. þannig að ég ætla bara frekar að fá mér nýjan. Daði er líka að fá sér nýjan síma og mamma ætlar að fá hans gamla og batteríið úr mínum (sem ég keypti nýtt á 6000 í janúar) og ef Daði kaupir sinn síma í BT ætla ég að selja honum innleggsnótuna mína, þá fæ ég alveg 8000 upp í nýjan síma :o)

Hehe, ég sá fyndna auglýsingu í gær. Það var verið að auglýsa eitthvert nýtt löggudrama sem er að fara að byrja á Skjá einum. Tvær löggur eru að yfirheyra einhverja konu, og samtalið var einhvern veginn svona (íslenskað af Unu):

Lögga 1: Við erum að eltast við raðmorðingja sem myrðir ungar konur.
Lögga 2: (tekur mynd af hillu) Ungar konur, eins og hana dóttur þína hérna.
Kona: Þetta er sonur minn.

Þetta vakti vissulega hjá mér kátínu, veit ekki hvað ykkur finnst :o)

Vá, það er stutt í að þú komir heim, Inga! Við verðum að hittast og baka brownies og hafa ekta Skottupartý!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home