Skottur

6 á netinu!

fimmtudagur, júlí 31, 2003

Ég get nú alveg hótað að fá mér mitt eigið blogg... Þið talið ekki um annað en það að ég sé með sífellldar einræður. Ef einhver ólánsöm sál utan Skotta (hata að beygja þetta orð, er það nokkuð Skottna? Neeii... mér finnst hitt passa betur) myndi í sakleysi sínu líta hér inn gæti hún fengið það á tilfinninguna að ég væri með athyglissýki á háu stigi... og mér er sko hreint ekki sama hvað Jónínu á Fáskrúðsfirði finnst um mig! ;op
Ég keypti mér aðra skó í dag. Þeir eru bláir... nánari upplýsingar gef ég (sem sagt, ef þið hittið mig rek ég framan í ykkur tærnar til að sýna ykkur, ekki búast við miklu málskrúði...). Ég kann ekki að lýsa skóm, allavega finnst mér það mjög erfitt.
Það er gaman að segja frá því að í vinnunni í gær hringdi síminn og ég svaraði (vúhú!). Í símanum var maður. Hann var mjög þvoglumæltur, grunaði mig jafnvel að áfengi hefði hann haft um hönd (þetta var um þrjúleytið). Hann spurði mig hvort að bókaútgáfan Skjaldborg væri hætt. Ég vissi nú ekki til þess. Þá bað hann mig um að nálgast símanúmerið, og hélt því blákalt fram að hún væri á Akureyri. Þegar ég fann hana hvergi í símaskrá yfir áðurnefndann bæ, spurði hann mig hvort að ég gæti ekki spurt einhvern fullorðinn! Hrmpf! Að lokum kom í ljós að Skjaldborg er í Reykjavík...
En Valdís, þó ég sé ekki að segja að ég gæti breytt nafninu mínu í Hanna Harðmælta, er ég nú alveg með einhvern norðlenskan framburð, allavega miðað við þessa sunnlendinga sem ég var með (þess vegna kaus ég orðalagið "þær vildu meina")... og jafnvel Þórunni stundum ;op

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home