Una mín, þú ert alltaf hér með einræður.
En það er ekki gagnrýni á þig, það þýðir bara að við hinar erum alltof latar við að skrifa.
En hvar eru Unnur og Helga? Þær hafa ekkert skrifað í langan tíma. Ætli þær hafi orðið netlausar eða eitthvað?
Eða kannski var þeim rænt... stelpur mínar, ef þið eruð að lesa þetta þá bið ég ykkur að skrifa eitthvað, annars þurfum við bráðum að breyta 6 á netinu í 4 á netinu. En vinnan mín er frekar einhæf, í dag var mér eiginlega ofaukið þannig að þegar enginn var í pásu hafði ég ekkert að gera.
En ég hef aldrei unnið þannig að ég fái ekki borgað fyrir matartímann minn, þar til núna.
Á morgun er föstudagur, þá er alltaf unnið styttra en aðra daga, bara 6 tíma í staðinn fyrir 8. Manni finnst eiginlega að dagurinn styttist um helming.
Þá er bara að komast í gegnum þann dag und dann fahren wir nach Berlin!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home