Skottur

6 á netinu!

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Það var gaman að fara í útilegu um helgina. Ég hef ekki komið í Valhöll svo lengi. Þetta var hálfgerð letiútilega, þar sem ónefndir aðilar, sem báru ábyrgð á öllum hinum, sváfu yfir sig... hmm... hverjir ætli það hafi verið? En nú er ekki svo mikið að gera í skólanum, ekki í þessari viku, a.m.k. En hlakka ekki allir til árshátíðarinnar. Það verður æðislegt. Það er ég sannfærð um. Ég er orðin svo spennt, sérstaklega af því að ég komst ekki í fyrra. En ég er að fara yfir um af spenningi.

föstudagur, nóvember 14, 2003

Ég var að setja inn links á hinar síðurnar sem sumar okkar eiga. Svona ef þið hafið einhvern tímann ekkert að gera.

Þetta er ekki að ganga. Þessi síða er við það að deyja. Come on, help me out here!!! Ég þarfnast aðstoðar. Annars er lítið að frétta, ég þarf að fara að plana útileguna. Það verður áreiðanlega voða fínt.

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Í gær var ég í skólanum fram eftir öllu. Ég var í skólanum til 16.05 og síðan á laaaangri kóræfingu fram til hálf níu eða svo. Hún átti að vera lengur, en það voru svo margir sem stungu af í kvöldmatarhléinu og því var tilgangslaust að hafa hana alveg fram eftir kvöldi. En næsta þriðjudag, og hugsanlega þarnæsta verða aftur langar æfingar, það verður að æfa fyrir árshátíðina. En ég hlakka svo til.
Svo er útilega um næstu helgi, ætli það verði ekki bara gaman :)

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Takk fyrir. Það var ljúft. En nú er alvara lífsins aftur tekin við *sigh*.
En svo árshátíðin er að nálgast, þanng að þetta er ekki svo slæmt.

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Eða kannski ætti ég bara að segja: gleðilegt vetrarfrí, Inga mín :o)

Gleðilegt vetrarfrí, elskurnar mínar :o)

miðvikudagur, nóvember 05, 2003

Una, gott að sjá þig. Þá er bara að draga hinar hingað inn. Það stendur ekki 2 á netinu hérna til hliðar. Nema ég hafi misskilið eitthvað. Og ég er sammála þér Una, þetta er eitthvað duló...

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Hmmm... mér finnst það í hæsta máta grunsamlegt að Unnur finni tíma til að skrifa inn á LiveJournalið sitt, en ekki hér... duló ;op

Er ég ein hérna?
Ég er farin að fá þá tilfinningu. Það virðist vera að allir aðrir séu búnir að gefast upp og yfirgefa mig hér. Spruning hvort maður geri ekki bara það sama. Reynið nú að sýna smá lit, bara pínu pons. Það er ekkert voða erfitt, skrifa inn einu sinni í viku, einu sinni á tveimur vikum. En ekki láta mig eina um þetta.

I'm lonely out here...