Minning dagsins
Þegar við vorum allar uppstrílaðar með glimmer og guðmávitahvað, flottustu ávextirnir í Ávaxtakörfunni! Sjálf átti ég glæsilega innkomu á frumsýningunni, eins og þið munið - hrundi inn á sviðið! Eeeerfitt að halda andlitinu þá. Verð að hrósa Helgu fyrir glæsilegan spuna... hinn almenni áhorfandi hefur eflaust haldið að þetta hafi verið planið allan tímann!
Í beinu framhaldi af þessu, þegar við fórum í 10. bekkjar heimsóknina í MA, á milli sýninga, vel glimmer málaðar. Þegar búnar að missa kúlið og ekki einu sinni orðnar busar!

3 Comments:
Ó já! og nú þegar við erum búin að vera í 4. bekk þá getum við kannski gert okkur grein fyrir því hversu óheyrilega asnalegar við vorum! :)
Mér fundust þessir 10. bekkingar frekar aumingjalegir þegar þeir mættu venjulega klæddir... ég get rétt ímyndað mér hvað ég hefði hugsað, hefði ég séð þetta sem 3. eða 4. bekkingur.
hahaha...vá hvad ég man hvad ég skammadist mín! En Ávaxtakarfan er gód minning. Ég horfdi einmitt á hana fyrir ekki svo lønfu og ég verd ad segja ad tetta var annsi flott sýning...annars tá er ég ad leita uppi blogg hjá vinum og kunningjum sem ég hef ekki hitt lengi;) Gaman ad kíkja á bloggid ykkar. Vona ad tid hafid tad gott, hvar í heiminum sem tid nú erud! Kram Thórný
Skrifa ummæli
<< Home