Allir fá þá eitthvað fallegt...
Hah, þið byrjið að tala um jólapakka og ég er geim...
Nei, svona í alvörunni þá tekur það alltaf tímann sinn fyrir mig að aðlagast nýrri tækni, en nú er ég tilbúin til að bæta þessu bloggi hérna inn í daglegt líf mitt.
En pakkamál horfa svo við mér:
Þar sem þið eruð bestu og tryggustu og nánustu vinir mínir, ekki sem hópur heldur sem einstaklingar, þá kýs ég að meta gildi ykkar á forsendum hverrar fyrir sig. Ég læt engan segja mér að ég megi bara gefa 2 gjafir (ekki það að þið hafið verið að fara fram á það), heldur vil ég semja við hvern fyrir sig.
Ég vil gefa ykkur öllum pakka, hverri og einni, ef ykkur er sama...
Þið eruð nánasta fjölskylda, stelpur, face it!
Minning: Muniðið þegar við ætluðum að láta Ingu halda að hún fengi ekkert í afmælisgjöf, haha, og lögðum á okkur voða vinnu við að smygla risaþrívíddarpúsli inn í fátaskápinn hennar... Oh.

3 Comments:
Ég er sammála með pakkana.
En Helga. Klárlega þarft þú að vera aðeins meira með á nótunum á þessari síðu. Þessi púslminning er BARA fyrsta minningin sem ég ritaði hér við endurvakningu síðunnar í haust. Kemur. Ég lýsi þessa minningu ógilda!
UnaklukkanþrjúumnóttnýbúinaðklárasjöttuseríuafGilmoreGirls
haha, ég var búin að gleyma að þessi minning hefði komið:) en ég er samt sammála unu að þessi minning hljóti að vera ógild....
hehe, ég var líka búin að gleyma því. Mér fannst skemmtilegt að lesa hana aftur :o)
Skrifa ummæli
<< Home