23.11
Nú er klukkan meira en tólf, sem þýðir að þessi yndisfríða snót er orðin árinu eldri!

Joyeux anniversaire!
Happy birthday!
Til lykke með fødselsdagen! (?)
Til hamingju með afmælið!
Og nú kann ég ekki meir :o)
Í tilefni af þessu ætla ég að koma með minningu um það þegar við fórum í afmælisútilegu í Gamla á (held ég) 16 ára afmælinu hennar Valdísar. Í fyrstu var ferðin eins og léleg hrollvekja, þar sem við gátum ekki kveikt í kamínunni og sátum allar í hnipri úti í horni, myrkfælnar og hrollkaldar. Eftir utanaðkomandi aðstoð hýrnaði yfir samkomunni og við átum og töluðum og átum og töluðum og töluðum og töluðum eins og okkur einum er lagið! Ég held að þetta sé ein af mínum uppáhaldsminningum :o)

3 Comments:
Takk fyrir mig, takk!
Herzlichen Glückwunsch zum Geburtstag!!!
Ég sendi þér gjöf síðasta miðvikudag, hún er örugglega á Akureyri núna.
Ég hringi í þig á morgun.
Ó, ó, við eigum að vera saman á afmælisdögum hvor annarrar...
Skrifa ummæli
<< Home