Fleiri myndir
Með þessari mynd ætla ég að heiðra minningu þeirra fjölmörgu nátta sem við höfum eytt saman í svefnpokum, þar sem sumir heyrðu sagarhljóð í hrotum, næturleikir þar sem við þurftum að bjarga svefngengli frá því að vera rænt af geimverum, þar sem við sváfum sex á þremur dýnum í Valhöll og allra skiptanna þar sem við blöðruðum fram á nótt.Góðir tímar.
Í öðrum fréttum hef ég heyrt orðróm á sveimi um að eitthvað sem kallast jól sé að nálgast. Því hef ég hafið undirbúning fyrir nokkrum dögum (engar skreytingar þó, ekki strax). Hafið þið tekið eftir einhverju slíku?

7 Comments:
Hahahahah þessi mynd! Babies! Hvað í ósköpunum er ég eiginlega að gera?
Annars ætlaði ég að skrifa færslu hér, en kem þá bara því sem ég ætlaði að segja á framfæri í þessu kommenti (góð setning). Í dag eru nefnilega liðin 5 ár frá atburði sem markaði þáttaskil í mínu lífi:
Jújú, það var þann 21. nóvember 2001 sem ég datt í Kvosinni!
haha! þennan fyrsta næturleik okkar mun ég ALLTAF muna! Mikið vorum við heimskar...enda pínulitlar!
En Una, dattst? tókst á flug svona meira!
Jáh, það er rétt. Flugferð og magalending... sár, sár sem aldrei gróa! (Eins gott að ég hætti ekki í skólanum samt)
Ég er búin að vera að skoða þessa mynd betur og í alvöru talað! Hvað er málið? Það er eins og ég sé andsetin! :o)
hei! þú ert litla lirfan ljóta! Bara blá!
Ég hlustaði alla vega á jólalög í dag... en Una, mér finnst Valdís eitthvað vera að hunsa þig á myndinni... eða kannski vill hún bara ekki þekkja þig...
Hahah, hver vill líka þekkja þetta sem er á myndinni! en já, við vorum litlar og vitlausar, og ég þorði ekki út í fyrsta útileiknum, og var ein eftir inni hjá Salvöru sem rumskaði ekki við öll ólætin! grét svo mikið að ég svaf inní herbergi hjá Jóhanni, hahaha, dd aumingji!
DD 21. árs!
Skrifa ummæli
<< Home