Le neuf février
Enn held ég áfram, til einskis? Svarið þið mér.
En í dag er afmælisdagur stúlku sem við þekkjum allar og elskum (just as she is)!
Til hamingju með 23 ára afmælið Helga Valborg Steinarsdóttir. Þú ert gömul, hoho!

6 á netinu!
Enn held ég áfram, til einskis? Svarið þið mér.


Valdís

Þórunn
Muniði...
... þegar Valdís sagði okkur að hún væri ólétt! :o)
... þegar Þórunn tók þátt í Ungfrú muninn.is ;o)
Jæja, nú er ég farin að læra!
Hey görls!
Ég stend mig í stykkinu sem endranær! Í dag, þann níunda október tvö þúsund og sjö fagnar þessi þokkafulla "þýska" mær 22 ára afmæli sínu:

Nú er liðin vika síðan að ég ákvað að setja inn afar vafasama færslu hérna, aðallega til þess að reyna að kalla fram einhver viðbrögð hérna. En það er ekki nóg með að ég hafi ekki einu sinni fengið comment frá Unu eins og venjulega en allir hinir, sem ég lagði til að myndu missa aðgang að síðunni sögðu ekki neitt. Engin mótmæli.
Hérmeð legg ég til breytingu á högum þessarar bloggsíðu.
Ég ákvað að smá lífi þyrfti að blása í þessa blessuðu síðu... það hefur ekkert gerst síðan í færslunni okkar Unu nú í byrjun júní.
Þið eruð nú meiri ræflarnir! Ekki nóg með það að þið skrifið ekki færslur heldur kommentið þið ekki heldur! Þórunn er mesti ræfillinn... loooooser! (Una)
...og ég fer í flugvél yfir hálft Atlantshafið og kem til Íslands.

Hmm, ég vildi að ég kynni að setja myndbönd af youtube hérna inn, því að ef ég kynni það myndi ég gera það. Og ég er með eitt doldið fyndið í huga, þannig að þið eruð frekar óheppnar að mín tölvukunnátta er ekki betri en þetta.
Takk elsku Valdís og Þórunn og Una (og Unnur) fyrir að deila jólahátíðinni með mér. Takk elsku Inga fyrir að ætla að eyða með mér dögum í London eftir viku, viku, eftir viku er ég búin í prófum!
Ég er greinilega að halda lífinu í þessari síðu hm hm. En ástæðan fyrir því að ég skrifa hér í dag er sú að þessi yndisfríða snót (skrifaði fyrst snút hoho) er árinu eldri:

Nú er klukkan meira en tólf, sem þýðir að þessi yndisfríða snót er orðin árinu eldri!

Joyeux anniversaire!
Happy birthday!
Til lykke með fødselsdagen! (?)
Til hamingju með afmælið!
Og nú kann ég ekki meir :o)
Í tilefni af þessu ætla ég að koma með minningu um það þegar við fórum í afmælisútilegu í Gamla á (held ég) 16 ára afmælinu hennar Valdísar. Í fyrstu var ferðin eins og léleg hrollvekja, þar sem við gátum ekki kveikt í kamínunni og sátum allar í hnipri úti í horni, myrkfælnar og hrollkaldar. Eftir utanaðkomandi aðstoð hýrnaði yfir samkomunni og við átum og töluðum og átum og töluðum og töluðum og töluðum eins og okkur einum er lagið! Ég held að þetta sé ein af mínum uppáhaldsminningum :o)