Í gær las ég nýju Harry Potter bókina. Hún er svo góð, þið verðið bara að lesa hana. Ég fékk hana í gærmorgun og kláraði hana áður en ég fór að sofa. Það er samt hálfgerð synd að vera búin með hana strax, ég þarf bara að lesa hana fljótlega aftur. Það er lítið annað nýtt að frétta hjá mér, ég eyddi öllum gærdeginum í lestur. Ég fæ sumarfrí í eina viku í viðbót, svo fer ég að vinna. Hálfgerð synd, það er svo þægilegt að vera í fríi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home