Þetta er nú eiginlega bara farið að vera eintal hjá Unu. Ég er ekki nógu dugleg (ég nenni aldrei í tölvuna, þetta er ótrúlegt). Ég er farin að fá nóg af vinnunni minni, þetta er samt ágætt. 8 tímar af því að brjóta saman kassa, og hér fær fólk ekki borgað fyrir pásu þannig að ég þarf að vera í vinnunni í 8 tíma og 45 mín. (við fáum samanlagt 45 mín í pásur, utan við klósettpásur og slíkt).
En næstu helgi fer ég til Berlín, og það þegar sumarútsölurnar eru í fullum gangi, þetta verður æðislegt. Ég hlakka svo allt of mikið til. Bara tveir vinnudagar í viðbót... svo förum við. Ég þarf svo að vinna á frídegi verslunarmanna... hrmpf.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home