Svona til að það sé á hreinu þá ræddi ég við Helgu Valborgu og það mætti segja að hún væri sæmilega jákvæð í garð þessarar hugmyndar um endurkomu "sex á netinu". (Una)
Nú er ég einmitt stödd í höllinni hennar Unu í Ásgarði og hvað haldiði að við séum að brasa nema googla veitingastaði fyrir kvöldið... (Helga)
Þessi síða verður það sem heldur okkur gangandi næsta vetur þegar þið verðið allar í burtu frá mér krúttin - í fyrsta skipti síðan við mættum á fyrsta dróttskátafundinn í Hvammi fyrir skrilljón árum er engin Skotta í sama bæ (nema ég og Unnur, en hún hyggur á landvinninga og söngpróf og ég veit ekki hvað og hvað). Vá hvað ég mun koma hingað og rifja upp góðar minningar, og ég ÆTLAST til að þið gerið slíkt hið sama! (Una).
Og í tilefni þess að nú er að hefjast annað skólaárið í MA án þess að við séum þar nærstaddar þá er minningin mín, ahem: Þegar Una var með sokkinn úti í stiganum á Hólum og við hlógum og hlógum og hlógum svo mikið að ég minnist þess ekki að hafa fengið slíkt kast nokkru sinni fyrr eða síðar. (Helga(sem er að fara til Englands ekki á morgun heldur hinn og er að kveðja Unu sína og á morgun líka Unni mína, búhú, og er líka búin að kveðja Valdísi sem fór næstum að skæla en ég hljóp út úr bílnum svo það yrði ekki meira erfitt...))
Til hamingju með þennan sviga Helga. Þetta er kannski góður tími til að segja þér að á þessari stundu eru þrír fílefldir karlmenn með kylfur á leið heim til mín. Þeir ætla að taka í hnakkadrambið á þér og binda þig fasta inni í herberginu mínu svo þú farir ekki til Englands! Hohohohoho. Það er þér fyrir bestu (eða mér). Búhú, ekki fara :o( (Una)
Æ, ókei, þú mátt fara. En komdu aftur! (Una)
Hey, ekki nema þú hættir að ryðjast! Svo er ég með ný gleraugu... Una kommentaði ekki á þau að fyrra bragði og ég held að það tengist einhverri vissri reynslu Valdísar af mér í biðröð í matsalnum í Lundarskóla... Noh, bara 2 minningar í sömu færslunni... ENDA ELSKA ÉG YKKUR ÓENDANLEGA! (Helga)
Jahá, nú hljómar allt sem ég segi á eftir þessu eitthvað rosalega ómerkilegt og kaldlynt... mér líkar ágætlega við ykkur. Bless. (Una)
Bless Una. (Helga)
Túdilú. (Una)
Cheers! (Helga)
Ok, skrifum annan hvorn staf (Helga)
Bless eða cheers!