Smá athugasemd
Þetta eftirminnilega annað kvöld á Krít (þegar Helga var "full") þá var ég með í brandaranum, það voru Unnur og Óskar sem fóru til að leita að einhverju öðru (man samt ekki hvað það var, hlýtur að hafa verið ómerkilegt) en ég var með á mexíkóska staðnum.
Og það sem mér fannst best var að þegar Helga var þykjustu-full, passaði hún sig samt á því að verða ekki of full...
Og þetta var annað kvöldið, þetta var hið eftirminnilega þriðjudagskvöld, þegar Una ætlaði að vera rosa klár og leika á okkur Helgu.
Ég hef ekkert bloggað í smá tíma, blogger var illa við mig og ég fór þess vegna í fýlu.
En minningin sem ég legg til í dag snýst um aðra ávaxtakörfu: Við vorum alltaf svo góðar í að áætla hvað við þyrftum að borða... muniði eftir ávaxtasalatinu, þessu sem fyllti púnsskálina og við ætluðum sem eftirrétt handa sex.
Góðir tímar.

2 Comments:
Haha, ég borðaði ekkert nema ávaxtasalat næstu vikuna!
Haha! ég virðist enn eiga við þetta vandamál að stríða, mér er bara alveg lífsins ómögulegt að áætla rétt magn miðað við fjölda!
Skrifa ummæli
<< Home