Þvílíkt framtaksleysi
Í fyrsta lagi verð ég að segja, að sjúklingurinn okkar þarf að fara aftur á gjörgæslu. Ég ætlaði mér að bíða eftir lífsmarki frá einhverjum öðrum, en nú tek ég af skarið, með tvær færslur í röð.
Mín minning eru klukkutímarnir sem við gátum setið að spilum og sumarbústaðarferðirnar í frívikunni í janúar.
by nifteindin
Þetta voru góðar stundir.

8 Comments:
Sko, ég kíki hingað inn á hverjum degi en finnst komið að Helgu og Þórunni að tjá sig :o) Svo mættu líka skapast umræður í kommentunum. En talandi um það, getur einhver stillt þannig að þau komi bara beint í pop-up, mér finnst svo pirrandi þegar það kemur alltaf ný síða... er búin að reyna sjálf en það virðist ekki vera að virka. Ég tilnefni Ingu!
Kerfið hjá blogger er eitthvað ekki að standa sig, en ég tók bara línu úr mínu eigin template og færði hana beint inn, þá gekk þetta.
Og af mér er svipaða sögu að segja, ég kíki hingað inn mjög reglulega, en var að bíða eftir einhverjum öðrum að tjá sig.
Myndin sem ég setti inn kom ekkert mjög vel út, en hana er líka að finna á myndasíðunni hennar Unu.
Og, undir 'previous posts' er bara að finna færslur frá þessu ári, þetta er allt að koma, við megum ekki láta þetta detta niður aftur.
En núna er kominn tími til að snúa sér aftur að ritgerðinni.
Æh muniði líka þegar við vorum alltaf að spila í Lundarskóla. Vá. Langt síðan.
Guð hvað ég sakna ykkar stelpur.
ó, allar einu krónurnar sem við þurftum fyrir eitthvað spilið... ég man hvorki hvað spilið heitir né hvernig það var, en ég man eftir einu krónunum sem við burðuðumst með.
Og hvað við gátum setið lengi að... núlla frá sjö, niður og aftur upp; forseti er náttúrulega bara endalaus; trjámann (hét það það); 99 (Helga að blóta á dönsku, og reyna síðan að ljúga) og ég veit ekki hvað og hvað.
Haha, já blessaðar einu krónurnar! Hét það ekki Púkk eða eitthvað svoleiðis? Ég man að maður þurfti að nota spilaborð, sem var þó auðvelt að fiffa með því að teikna á A4 blað. Hét ekki eitthvað Pamfíll í þessu?
Ég held það, það var eitthvað tengt gosunum, þessi pamfíll (minnir mig).
Ég held það hafi verið Valdís sem kynnti spilið ti sögunnar... hún ætti að muna.
Já ég man!!! ég man! ég spila þetta spil alltaf á jólunum! og já ég er alveg sammála, ég er alltaf að kíkja hérna, en mér finnst vera komið að Helgu eða Þórunni! og það er pamfíll sem er efitrsóknarverðast að eignast og það er gosi, og ég man eftir því að við vorum alltaf, alltaf, alltaf að spila, það voru virkilega góðir tímar!
Skrifa ummæli
<< Home