Þetta eftirminnilega annað kvöld á Krít (þegar Helga var "full") þá var ég með í brandaranum, það voru Unnur og Óskar sem fóru til að leita að einhverju öðru (man samt ekki hvað það var, hlýtur að hafa verið ómerkilegt) en ég var með á mexíkóska staðnum.
Og það sem mér fannst best var að þegar Helga var þykjustu-full, passaði hún sig samt á því að verða ekki of full...
Og þetta var annað kvöldið, þetta var hið eftirminnilega þriðjudagskvöld, þegar Una ætlaði að vera rosa klár og leika á okkur Helgu.
Ég hef ekkert bloggað í smá tíma, blogger var illa við mig og ég fór þess vegna í fýlu.
En minningin sem ég legg til í dag snýst um aðra ávaxtakörfu: Við vorum alltaf svo góðar í að áætla hvað við þyrftum að borða... muniði eftir ávaxtasalatinu, þessu sem fyllti púnsskálina og við ætluðum sem eftirrétt handa sex.
Góðir tímar.