Skottur

6 á netinu!

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

23.11

Nú er klukkan meira en tólf, sem þýðir að þessi yndisfríða snót er orðin árinu eldri!


Joyeux anniversaire!

Happy birthday!

Til lykke með fødselsdagen! (?)

Til hamingju með afmælið!

Og nú kann ég ekki meir :o)

Í tilefni af þessu ætla ég að koma með minningu um það þegar við fórum í afmælisútilegu í Gamla á (held ég) 16 ára afmælinu hennar Valdísar. Í fyrstu var ferðin eins og léleg hrollvekja, þar sem við gátum ekki kveikt í kamínunni og sátum allar í hnipri úti í horni, myrkfælnar og hrollkaldar. Eftir utanaðkomandi aðstoð hýrnaði yfir samkomunni og við átum og töluðum og átum og töluðum og töluðum og töluðum eins og okkur einum er lagið! Ég held að þetta sé ein af mínum uppáhaldsminningum :o)

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Fleiri myndir

Með þessari mynd ætla ég að heiðra minningu þeirra fjölmörgu nátta sem við höfum eytt saman í svefnpokum, þar sem sumir heyrðu sagarhljóð í hrotum, næturleikir þar sem við þurftum að bjarga svefngengli frá því að vera rænt af geimverum, þar sem við sváfum sex á þremur dýnum í Valhöll og allra skiptanna þar sem við blöðruðum fram á nótt.
Góðir tímar.

Í öðrum fréttum hef ég heyrt orðróm á sveimi um að eitthvað sem kallast jól sé að nálgast. Því hef ég hafið undirbúning fyrir nokkrum dögum (engar skreytingar þó, ekki strax). Hafið þið tekið eftir einhverju slíku?

föstudagur, nóvember 17, 2006

Sveppirnir ykkar

þessa minningu getur enginn sett út á: Munuði þegar við útskrifuðumst úr MA þann 17.júní 2005, allar saman...

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Allir fá þá eitthvað fallegt...

Hah, þið byrjið að tala um jólapakka og ég er geim...
Nei, svona í alvörunni þá tekur það alltaf tímann sinn fyrir mig að aðlagast nýrri tækni, en nú er ég tilbúin til að bæta þessu bloggi hérna inn í daglegt líf mitt.
En pakkamál horfa svo við mér:
Þar sem þið eruð bestu og tryggustu og nánustu vinir mínir, ekki sem hópur heldur sem einstaklingar, þá kýs ég að meta gildi ykkar á forsendum hverrar fyrir sig. Ég læt engan segja mér að ég megi bara gefa 2 gjafir (ekki það að þið hafið verið að fara fram á það), heldur vil ég semja við hvern fyrir sig.
Ég vil gefa ykkur öllum pakka, hverri og einni, ef ykkur er sama...
Þið eruð nánasta fjölskylda, stelpur, face it!

Minning: Muniðið þegar við ætluðum að láta Ingu halda að hún fengi ekkert í afmælisgjöf, haha, og lögðum á okkur voða vinnu við að smygla risaþrívíddarpúsli inn í fátaskápinn hennar... Oh.

sunnudagur, nóvember 05, 2006

Jólagjafir..

Hver á að gefa hverjum hvað og af hverju?
hah! hvað fæ ég?!?