Skottur

6 á netinu!

föstudagur, ágúst 29, 2003

Hæ, ég heiti Una og ég er AULI - Part Two

Þannig er mál með vexti að núna í kvöld var planað að kíkja í bíó á hina rómuðu ræmu Amerísk Baka - Brúðkaupið. Þar sem að Valdís ætlaði að vera dræver kvöldsins og við vorum dáldið seinar fyrir var ég voða skynsöm og beið eftir henni fyrir utan húsið mitt. Þá hringdi hún og spurði hvort ég gæti ekki labbað upp götuna mína og beðið þar til að flýta fyrir. Ég gerði það og fór meira að segja yfir Mýrarveginn til að ég gæti bara nánast sest beint upp í bílinn. Þarna stend ég í pínu stund og sé þá álengdar hvar lítill hvítur bíll kemur keyrandi. Hann færist nær og ég sé að þetta er Polo, þriggja dyra og það er Y í númerinu. "Hmmm... hugsa ég, þetta hlýtur að vera Valdís, hverjar eru líkurnar á því að annar svona bíll muni keyra hér framhjá akkúrat núna?" (STÓR MISTÖK nr.1!) Bíllinn færist nær og minn mjög svo áhrifagjarni heili sannfærir mín mjög svo gölluðu augu (-7.75 á báðum, þarf ég að segja meira?!) um að góðvinkona mín hún Valdís sitji þar við stýri, jafnvel við annan mann (Guðrúnu, sem hún ætlaði að sækja fyrst). Þá er komið að STÓRUM MISTÖKUM nr. 2, sem eru þau að ég rek hendina út og hoppa einhvernveginn upp í mjög ýkta húkka-far hreyfingu. Bíllinn brunar framhjá og þá sé ég, mér til skelfingar, að þetta er vissulega ekki Valdís. Við stýri situr manneskja sem ég hef aldrei á ævi minni séð áður og mun VONANDI aldrei sjá aftur... Og, já, hún var ein í bílnum...

Ég hætti að vinna í dag. Nú er ég í fríi!!! En mig langar til að við hittumst eitthvað aðeins áður en skólinn byrjar, það þarf ekki að taka langan tíma. Hvað segið þið um það? Ég verð í fríi þannig að þetta yrði ekkert mál fyrir mig.

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Una, þú verður bara að koma hingað og prófa þetta. Þetta er ekkert svo hræðilegt, go þú mátt hafa linsur.
Það er svo búið að klippa á mér hárið, ákvað að deila því með ykkur.

sunnudagur, ágúst 24, 2003

Gyllta nálin. Mesti HORROR sem ég hef upplifað. Var smeik við þetta til að byrja með, en ímyndið ykkur skelfinguna þegar maðurinn kom og tók af mér gleraugun! Algjörlega berskjölduð var ég hífð upp í það sem ég var fullviss um að yrði minn bani... en jæja, það er yfirstaðið núna... ;op

Muniði eftir turninum í Tívolíinu í Kaupmannahöfn, Freefall-turninum sem ég man ekki lengur hvað heitir?
Ég fór í svoleiðis í dag. Nema að það er stærsti svoleiðis turn í heimi. Fallið sjálft var 71 m á 98 km hraða á klukkustund. Það var alger snilld. Ég fór líka í brattasta (og ef ekki stærsta, ég er ekki viss) trérússíbana í heimi. Þar sem var brattast á leiðinni niður var hallin 61°. Það er svolítið mikið að upplifa. En þetta var svo gaman. Ég sá líka höfrungasýningu sem var alger snilld.

laugardagur, ágúst 23, 2003

Ég skil hann svo sem. Ég var einu sinni ljóska. Náttúran reddaði mér frá því þegar komið var nóg, ég þurfti ekkert að lita.

Ég var bara að kaupa mér minnisdisk með USB-tengi, ég eignaðist nýjan síma í júní. Það var bara Nokia 3310, en breyting frá gamla símanum mínum. Svo er ég búin að kaupa mér aðeins af fötum. Síðan ætla ég mér að kaupa efni og mamma ætlar að sauma úr því tvö pils handa mér fyrir veturinn. Ég hlakka svo til að hitta ykkur allar aftur. Ég verð í fríi á Íslandi í alveg viku áður en skólinn byrjar, þannig að þið verðið helst að finna tíma, ef við eigum að hittast eitthvað fyrir skólann. En ég hlakka til að komast í skólann.

Daði er búinn að lita hárið á sér dökkt!!!!!!! OG ekki bara það heldur líka augabrúnirnar!!!!! Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég sá hann, hrökk við og hélt fyrst að það væri einhver ókunnugur maður heima hjá mér í góðum fíling í tölvunni... Ég þarf víst bara að venjast þessu, og það gæti tekið tímann sinn því að hann er farinn aftur suður í skólann. En AF HVERJU samt að gera þetta? Kannski vill hann bara ekki láta tengja sig við ljóskuna systur sína....

Jæja, ég er búin að kaupa mér nýjan síma. Sony Ericsson T68i... geðveikt flottur :o) Ég er að vísu ennþá að læra á hann, það er erfitt að venjast svona tóli þegar maður hefur einungis verið með Nokia. Svo ég ætla að biðja ykkur um að láta ykkur ekki bregða þótt þið fáið sms frá mér sem er til dæmis svona: "sfr"...

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

Já, Una. Það vissum við allar.
Nei, þú ert nú ágæt, bara ögn misheppnuð á stundum.
Ég er bara hér, komin með svo mikla leið á vinnunni, en hey... það eru bara 6 vinnudagar eftir og þar af eru tveir stuttir (það er bara unnið 6 tíma á fös. í stað 8). Á morgun vorum við að hugsa um að skreppa til Bremerhaven og gera eitthvað skemmtilegt.

En ég hlakka SVO til að koma aftur heim og hitta alla. Við bara verðum að hittast, helst áður en skólinn byrjar. Ég verð þarna í rúma viku þannig að við hljótum að geta skipulagt eitthvað.

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

Hæ, ég heiti Una og ég er AULI.

Ég hringdi um daginn (máske á mánudaginn, man ekki) og pantaði mér tíma á verkstæði (Höldur) til að gera við jafnvægisstengur í bílnum mínum, því þegar ég fór með gripinn í skoðun kom í ljós að þær voru meira og minna ekki festar (aðallega meira). Ég fékk tíma kl. 10 á miðvikudaginn (sem sagt, í morgun). Ég taldi það nú ekki mikið mál og ætlaði bara að fara með bílinn kvöldinu áður og láta mömmu sækja mig. En, nei, svo bara steingleymi ég því og vakna upp í panikki í nótt þegar ég man eftir tilvist þessa pantaða tíma... Mamma gat ekki aðstoðað mig í morgun vegna anna, þannig að ég ákvað bara að vera snemma í því og keyra bílinn á verkstæðið og labba svo í vinnuna (átti að mæta 9), enda GLERÁRTORG tiltölulega nálægt vinnustað mínum. Svo þegar ég kem þarna að og sé skiltið: "Höldur, hjólbarðaverkstæði", átta ég mig þegar í stað á því að ég er greinilega að klikka í hausnum. Átti nebbla pantaðan tíma á bifreiðaverkstæðinu, ekki hjólbarðaverkstæðinu! Og bifreiðaverkstæðið er í Draupnisgötu, eins langt upp í þorpi og hægt er að vera! Panikk, panikk, panikk! Keyri þangað (panikk) og skil bílinn eftir (panikk). Geng að götunni (panikk) og sé þá strætóskýli (hef ekki tekið strætó í langan, langan tíma). Róast aðeins niður og lít á áætlunina. Jú, jú þarna gengur strætó niður í bæ. Ætla að líta á klukkuna á símanum en þá (panikk!) fatta ég að sökum þess að ég missti hann í gólfið á mánudaginn og mölvaði skjáinn eru myndgæðin vægast sagt óásættanleg. Maður sér bara pínu efst í vinstra horninu og enn minna neðst í því hægra. Bíð þarna eins og illa gerður hlutur í nokkrar mínútur... og hvað sé ég? Glæsilega SVA bifreiðina koma svífandi! Gleði og sæla fyllir mig og ég stíg um borð, (er ég með klink? Panikk! Húff, eins gott!) borga og brosi mínu blíðasta til bílstjórans sem er eflaust grunlaus um atburði morguns míns... og það væri heldur betur spúkí ef hann væri það ekki... Svo sat ég í strætó í 20 mínútur, því að hann fór lengsta hring sem hægt er að fara, en náði niður í bæ rétt fyrir vinnu :o) Það á samt að banna svona stress svona snemma morguns...

En já, mér tókst að brjóta skjáinn á símanum mínum endanlega! Kemur í ljós að íslenskt parket er alveg jafn hart af sér og það norska... ef ekki harðara, því eins og glöggir menn muna þá brotnaði bara oggupoggu neðst á skjánum í Norge, og kom það ekki í veg fyrir notkun símans, jafnt hringingar sem sms. Viðgerð á símanum kostar 7000 kr. þannig að ég ætla bara frekar að fá mér nýjan. Daði er líka að fá sér nýjan síma og mamma ætlar að fá hans gamla og batteríið úr mínum (sem ég keypti nýtt á 6000 í janúar) og ef Daði kaupir sinn síma í BT ætla ég að selja honum innleggsnótuna mína, þá fæ ég alveg 8000 upp í nýjan síma :o)

Hehe, ég sá fyndna auglýsingu í gær. Það var verið að auglýsa eitthvert nýtt löggudrama sem er að fara að byrja á Skjá einum. Tvær löggur eru að yfirheyra einhverja konu, og samtalið var einhvern veginn svona (íslenskað af Unu):

Lögga 1: Við erum að eltast við raðmorðingja sem myrðir ungar konur.
Lögga 2: (tekur mynd af hillu) Ungar konur, eins og hana dóttur þína hérna.
Kona: Þetta er sonur minn.

Þetta vakti vissulega hjá mér kátínu, veit ekki hvað ykkur finnst :o)

Vá, það er stutt í að þú komir heim, Inga! Við verðum að hittast og baka brownies og hafa ekta Skottupartý!

mánudagur, ágúst 18, 2003

Ég er nú ekkert rosa brún, bara brúnni en vanalega. Ég fór í gær á vatnaskíði, ekki íþrótt sem ég er góð í (kemur á óvart) og í dag fór ég í mini-golf, það var aðeins skárra.
En þetta var alveg hræðilegt með vatnaskíðin. Fyrsta tilraun var þannig að ég ætlaði ekki að detta fram fyrir mig, þannig að þegar ég fór af stað datt ég aftur fyrir mig. Þegar ég datt og missti skíðin fattaði ég ekki að sleppa... afar heimskulegt. Þannig að ég fór aðeins áfram en áttaði mig svo. Síðan þurfti ég að finna skíðin (þau detta af um leið og maður dettur). Þá sá ég annað og synti að því. Svo kom upp vandamál. Ég var nefnilega ekki með linsur og sá ekki hvar hitt skíðið var. Þannig að ég bara svamlaði um í nokkurn tíma og leitaði og þegar ég loksins sá skíðið var búið að senda einhvern út til að synda eftir því, afar vandræðalegt. Síðan fór ég nokkrar ferðir, engin var alveg eins slæm, en í einni datt ég (eins og alltaf), missti skíðin og fékk svo annað þeirra í hausinn og er nú með kúlu á höfðinu...
Þetta er ekkert fyrir mig, þetta var samt ágætt. Ef við förum þangað aftur fer ég örugglega samt á skíði.

Síðan er ég búin að panta flug og kem til Íslands laugardaginn 6. sept. og kemst norður samdægurs.

sunnudagur, ágúst 17, 2003

Ohh, það hlýtur að vera gaman að vera brúnn... ef ég bara gæti upplifað þá tilfinningu... ;op Jæja, það var nú aldeilis skemmtilegur dagur hjá mér í gær! Ég byrjaði hann á því að fara í vinnuna og var búin tveim tímum fyrr, því að það var svo lítið að gera. Þá fór ég bara heim og "tjillaði" aðeins, og fór svo og sótti Helgu Valborgu, því við ætluðum að fara í Bónus að versla efni í Brownies (sem eru gómsætar, sérstaklega með ís!!!). Svo fórum við heim til mín og bökuðum og elduðum okkur svo kjúklinga fajitas, og borðuðum og töluðum og borðuðum og töluðum og borðuðum svo brownies og horfðum á Bridget Jones :o) VÁ, hvað ég elska Darcy!!! Sama hvor þeirra það er, elska þá báða! Svo skutlaði ég Helgu heim til sín (eftir að hafa reynt að tala hana út í það að koma í Sjallann með okkur...) og fór svo í Sjallann, og það var GEÐVEIKT GAMAN, enda Sálin að spila :o) Svo fór ég í sund með Tótu í dag... og borgaði með skólakortinu mínu... og ég er viss um að það var sama kellingin sem var að afgreiða mig og ætlaði að bíta af mér hausinn síðasta sumar þegar ég ætlaði að borga með því! Hún skoðaði það geðveikt vel og sagði: "Það er nú spurning hvort að þetta sé komið í gildi..." Ég sagði henni nú að það væri í gildi eftir 15. ágúst, eins og stóð á verðlista sem hékk við hliðina á henni og eins og hún hvæsti á mig hér í den. Þá sagði hún: "En er búið að setja skólann hjá þér?" Belja. Ég fékk nú samt að borga með því...

föstudagur, ágúst 15, 2003

Hér er loksins farið að verða þolanlegt. Í morgun var bara svolítið kalt, ekki nema 16-17°. Og um daginn var hitinn rétt yfir 20°. Þetta er svo gott eftir fleiri vikna hitabylgju. Það rigndi meira segja í gær...
Ég er ekki mikið fyrir Brynju-ís. Mér finnst hann ekki mjög góður. Hann er svo vatnskenndur eitthvað. Svona ís á að vera rjómaís, þéttur í sér. Annars borða ég bara kúluís hér, það er ekki hægt að fá almennilegan rjómaís hér. En það skiptir engu máli.

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

Mmmmm... það var SVO gott veður í dag! Ég fór heim í hádeginu og labbaði svo aftur niður í bæ, fannst það algjör synd að fara bílandi í svona glampandi sól og blíðu :o) Svo kom í ljós að það var dáldill fílingur fyrir því að fara að kaupa ís í Brynju í vinnunni. Við vorum fjögur að vinna, ég, Heiða, Hófí og Tommi. Heiða var á bíl svo að hún ætlaði að fara og kaupa fyrir okkur, en sagði að það þyrfti einhver að koma með henni til að halda á ísunum. Við Hófí sögðum á nákvæmlega sama andartaki: "Ég skal fara..." Þá hófst hið sígilda "Nei, þú mátt fara" stríð. Að lokum sagði Tommi okkur bara að fara allar. Þannig að við skruppum einn rúnt, voða gaman :o) Og ísinn var SVO góður! Namminamminamminamm.... Ég er eiginlega hætt að vilja rjómaís, allavega freistar mín ekki mjög mikið að fara að kaupa mér ís í Ísbúðinni eða Borgarsölunni (að vísu eru nú fleiri ástæður fyrir því að ég vil ekki fara á seinni staðinn...). Maður er orðin dáldil Brynjukona... ;op
Er einhver stemning fyrir því að hittast og grilla á laugardaginn? Og fara svo jafnvel í Sjallann á eftir? Sálin er nebbla að spila :o)

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

Jæja.... I'm back... Múahhahhaha!!! Hef verið þögul lengi, en er nú reiðubúin að láta ljós mitt skína :o) Er það bara ég, eða er það SKUGGALEGT hversu hratt þetta sumar hefur liðið? Mér bregður í hvert skipti sem ég lít á dagatalið! Úff, púff... skólinn fer að byrja... Ég veit ekki alveg hvernig mér finnst það. Það er alltaf gaman að byrja aftur í skólanum en upp á síðkastið hef ég fyllst kvíða við tilhugsunina... ég er virkilega hrædd við það að vera að fara í 3. bekk, því að það er bekkurinn á undan 4. bekk og svo verður maður stúdent og þá þarf maður að fara að fullorðnast!!!! Og eins og staðan er núna veit ég ekki hvort ég myndi fúnkera eitthvað úti í hinum stóra heimi. Hvað vil ég gera? Ég veit að vísu hvað ég vil gera, en maður verður nú seint að rithöfundi ef maður skrifar ekki staf, nema á blogg af og til! Kannski ætti ég að gerast ævisöguritari, mér gengur nebbla oft vel að segja frá atvikum sem gerðust í raun og veru (að mínu mati allavega) en ég hef ekki skrifað sögu í ár og daga... ég er samt full af hugmyndum, mér gengur bara illa að koma þeim á blað (eða í Word).

Anyways, ég var ekkert smá dugleg um helgina:

1) Ég passaði Jóhönnu frá 20:30 á laugardagskvöldi til 16:00 á sunnudegi.
2) Ég tók til í herberginu mínu.
3) Ég þurrkaði af í herberginu mínu.
4) Ég tók til í spóluskúffunni minni (merkti það sem ómerk(ileg)t var, fjarlægði það sem eigi átti heima þar og så videre).
5) Þreif bílinn minn (að utan jafnt sem innan).
6) Tók til í hillunni minni inni á baði.
7) Hreinsaði bæði nýju skópörin mín og að auki spariskóna mína (ég þurfti að glerhreinsa skóna sem ég fór í í Sjallann...)

Mér finnst líka rétt að taka það fram að liðir 2 - 7 (og stór hluti af 1) fóru fram á sunnudeginum :o) Hah! Geri aðrir betur ;op Þessi dugnaður átti sér framhald þegar ég var að vinna í Hvammi áðan og bretti upp ermarnar og fór í gegnum risablaðabúnka á skrifborðinu. Díses, ég sver að sumir hafa aldrei hent einu einasta blaðsnifsi! En núna ætla ég að drífa mig svo ég missi ekki af Boston Public. C - ya, sweeties :o)

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Já, ég ætlaði að segja ykkur eitt.
Ég er búin að kaupa mér nýjan kjól fyrir árshátíðina, mér finnst hann flottur. Verður örugglega jólakjóllinn minn líka.
Og ef þið viljið lesa meira um Berlinarferðina mína þá skrifaði ég meira inn á síðuna mína, vona bara ekki að það sé mjög leiðinlegt.

Hér er um 30°C hiti. Og það er frekar útlit fyrir að hlýni en kólni. Svo las ég á mbl.is að þessi hitabylgja eigi að endast fram í september!!! Guði sé lof að við búum þó við sjóinn, ég myndi ekki lifa þetta af inni í landi. Þetta er víst fimmta versta hitabylgja í Evrópu á síðustu 150 árum... þetta er eiginlega einum of.

sunnudagur, ágúst 03, 2003

Bækur eru málið og haf alltaf verið það... það er engin spurning.
Ég skemmti mér konunglega í Berlin um helgina, verst að við gátum ekki verið lengur. Mér líkar við þessa borg, hún er mjög áhugaverð. Líka fullt, fullt af skemmtilegum búðum. Samt fannst mér eiginlega enn skemmtilegra að fara "sight seeing". Ganga um og sjá merkilega staði í miðborginni. Ég tók meira að segja með mér heim stykki úr múrnum (borgaði að vísu fyrir það). Hvað annað er hægt?

föstudagur, ágúst 01, 2003

Jæja, jæja, jæja... daddara... tralalalalala... ég veit ekkert hvað ég á að gera. Það er verslunarmannahelgi. Það er föstudagskvöld. Klukkan er hálf ellefu. Ég held að ég viti hvað framtíðin ber í skauti sér en kannski hef ég rangt fyrir mér... gæti það gerst? Jú, ég held ég viti það. En, nei, kannski ekki... en jú, líklega... eða hvað? VÁ hvað ég á mér ekki líf!!! :o) Maður getur ekki annað en hlegið að því ;op Oó, hér er ég EIN að RÆÐA... leggið saman tvo og tvo og þið fáið ekki út fimm. Hér fer fram EINRÆÐA í boði Unu :o)

Ég er pottþétt að missa vitið... Einhverjar ráðleggingar?

Ahhh, ég las Óradís aftur í dag! Rölti upp á bókasafn í hádeginu mínu. Ég var næstum því búin að gleyma hvað þetta er yndisleg bók! Hvernig er hægt að gleyma bókum sem maður hefur lesið? Ég les að vísu ekki eins mikið núna og ég gerði áður, en þá las ég oft 1 - 2 bækur á dag. Það sorglega er að ég man líklega ekki eftir helmingnum af þeim, eða það uppgötvaði ég í dag. Allavega voru nokkrir kunnuglegir titlar í barnadeildinni á Amtinu sem ég þurfti dáldið að pæla í til að muna einhvern söguþráð. En svo eru náttúrulega bækur sem maður hefur lesið oft og mörgum sinnum, eins og til dæmis Óradís (samt var ég að vísu næstum búin að gleyma henni... hmmm...). Og líka ein bók sem mamma átti þegar hún var lítil og heitir Lísa eða Lotta? Ég las hana nokkrum sinnum sem barn, en svo á táningsárum mínum var gerð mynd með alveg nákvæmlega sama söguþræði, með einhverjum Olsen - tvíburum í aðalhlutverkum (Søstrene Olsen, máske ;op). Það var að vísu endurgerð á miklu eldri mynd, sem var í sjónvarpinu fyrir skemmstu (eða allavega með alveg eins söguþræði líka...). Allar þessar bókapælingar hafa leitt til þess að nú man ég sífellt eftir fleiri bókum sem ég hef lesið... til dæmis var ég núna að muna eftir bók sem ég las í 7. bekk (Hafralækjarskóli) um heyrnarlaus hjón sem eignast heyrandi barn og hvernig þau takast á við það. Ég held að bækur séu bara málið...

Jæja, anyway... ;op