Una mín, þú ert nánast með einræður á þessu bloggi :) Þú skrifar og skrifar, jafnvel þótt það líði dagar á milli þess sem aðrir svara! :op Nú vita þæra að þú sért perri, ekki halda... ;) En hvað meinaru með því að hafa verið að teikna typpi í vinnunni??? Una, þó þú berir það fyrir þig að þú hafir verið að krassa, þá hlýtur þú að hafa verið að hugsa um eitthvað á meðan!!! uhhum!!! Varstu nokkuð að hugsa um strák að nafni *******??? Bara sona að spá :) Það er loksins komið vaktaplan... en það er ekki víst að það sé endalegt því að við erum svo oft í fríi og missum bónus og eikkað meira sem að ég skyldi ekki, en samkvæmt þessu á ég að vera í fríi næstu helgi, en ég er að hugsa um að vinna, ég þarf pengene... Jæja, þá er ég farin að sofa :) Gute Nacht (Una, þetta þýddi Góða nótt :) Ég ætlaði nú ekki að skilja þig útundan jafnvel þó þú sért nú ekki alveg á réttri braut í lífinu :) Ég meina FRANSKA... halló!!! :) Jæja, bæjó
mánudagur, júní 30, 2003
Á ég að nenna að skrifa eitthvað? En það gerðist ekkert merkilegt í dag... fyrir utan það að nú halda stelpurnar sem vinna með mér að ég sé algjör perri! Á einum tímapunkti í dag, þegar það var lítið að gera, var ég eitthvað að krassa (var ekki að reyna að teikna neitt, enda veit ég betur en að vera að reyna eitthvað á því sviði... ). Þá spurði Heiða sem er að vinna með mér: "Hvað ertu að teikna?! Er þetta typpi?!" Ég neitaði þessu harðlega, en hún sagði að þetta væri alveg eins og Hófí fannst það líka. Ég sakaði þær nú bara um sorahugsunargang, en þegar ég var síðar að skoða krassið mitt sá ég við nánari skoðun að þær höfðu ekki alveg rangt fyrir sér... Just my luck... ég ætla aldrei að krassa aftur...
sunnudagur, júní 29, 2003
Hmmm... lúin... mótið loksins búið... það var samt ágætt, bara þreytandi og óskipulagt af hálfu fararstjórnar... en, æ, alveg rétt, það VAR ENGIN FARARSTJÓRN! Við Tóta og Kata ætluðum að vakna kl. 8 í morgun en nei, við vöknuðum kl. 9:30 í staðinn! Flýttum okkur strax niður á svæði, og sem betur fer var búið að gefa krökkunum morgunmat og svoleiðis... þessi eini og hálfi tími reddaði alveg fyrir mér deginum, annars hefði ég líklega ekki meikað það að bera borð í hellirigningu...
Harry Potter hefur verið pöntuð! Hallelúja! Arrr! Íha! Vúhú! Hey, Valdís og Þórunn... það vantar rithátt fyrir spangólið... damn! Og meira til ykkar: senduð þið sms úr símanum mínum??? Það stóð eikkað Hæbb inni í Write messages þegar ég "skrapp þangað inn" í dag... þið vitið hvað mér finnst um svona...
miðvikudagur, júní 25, 2003
Sama hér.
Ég tók þetta áður, en fékk sömu útkomu núna.

You are smart and sexy!
Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla
Og Una, það að þér detti fyrst Sims í hug þegar þú heyrir "Start living your live" þýðir bara að þú þarft virkilega að taka þetta til þín.
Jæja, það er nú aldeilis langt síðan maður hefur tekið eikkað skemmtilegt próf! Og hvaða lag er ég? Daddaramm....

Everclear's- "Wonderful." You sound
depressed and need to cheer up. Start living
your life!
What song are you?
brought to you by Quizilla
Hmmm... "start living your life"... er verið að meina Sims eða hvað er málið? ;op
mánudagur, júní 23, 2003
Swimming, swimming, in the swimming pool.
When days are hot (og það eru þeir), when days are cold, in the swimming pool.
Breast stroke, side stroke, fancy diving too!
Don't you wish you never had anything else to do?
Íha! Það er svo gott veður... mmmm... ég fór í sund í morgun og synti 20 ferðir = 500 metra! Og ætla mér að endurtaka leikinn á morgun (kannski nokkrar ferðir til eða frá). Svo verður að vísu að vera hlé á þessum duglegheitum mínum, þar sem að ég á aðeins eitt skipti eftir á sundkortinu mínu og á ekki pening til að kaupa nýtt fyrr en eftir mánaðamót... en þá verður þetta líka tekið með trompi!
Ohhhh, ég öfunda þig svo af bókinni Inga! Sé svo eftir því að hafa alltaf verið að lúsablesast eikkað og ekki pantað mér hana strax. Daði ætlar samt að gera það fyrir mig þannig að ég fæ hana eftir svona 3 vikur máske :o) Ohh, ég hlakka til!
Æ, mánaðamótin... þau sé ég í hillingum... veit ekki af hverju en af einhverjum orsökum finnst mér að allt verði þá betra, öllum erfiðleikum verði lokið og mín bíði ein sældartilvera... ég get farið í plokkun&litun, í klippingu jafnvel og keypt mér linsur... hætti loksins að líta út eins og frummmaður og hætti að lenda í því að heilsa fólki ekki í sundi (eins og gerðist til dæmis í morgun, þegar ég labbaði fram hjá einni samstarfskonu minni þrátt fyrir skýrt og greinilegt "Hæ" af hennar hálfu)...
Jæja, best að fara að koma sér í háttinn... vil ekki eiga það á hættu að sofna í lauginni og týna þar af leiðandi lífinu... allavega ekki á meðan ég lít ennþá út eins og frummaður... ;op
sunnudagur, júní 22, 2003
Í gær las ég nýju Harry Potter bókina. Hún er svo góð, þið verðið bara að lesa hana. Ég fékk hana í gærmorgun og kláraði hana áður en ég fór að sofa. Það er samt hálfgerð synd að vera búin með hana strax, ég þarf bara að lesa hana fljótlega aftur. Það er lítið annað nýtt að frétta hjá mér, ég eyddi öllum gærdeginum í lestur. Ég fæ sumarfrí í eina viku í viðbót, svo fer ég að vinna. Hálfgerð synd, það er svo þægilegt að vera í fríi.
laugardagur, júní 21, 2003
Helú... gaman að sjá að Inga er aftur á meðal oss :o) VÁ, ég öfunda þig dauðans af Harry!!!! Mig langar SVO í hana!!! Ef ég hefði verið fyrir sunnan um helgina, gæti vel verið að ég hefði tjaldað fyrir utan Mál og Menningu í skikkju og með galdrasprota... eða, nei, segi það nú kannski ekki ;op Ég skal eignast þessa bók, það er pottþétt!!! Hún er ekki komin í búðina til okkar ennþá, og ekkert víst að við fáum hana í bráð :o(
Ég er búin að vera að brillera í frönsku í dag! Seldi þrjár peysur og slatta af bolum, allt frönskukunnáttunni að þakka ;op Nei, þetta var nú svo sem engin eðalfranska og ég skildi svona fjórða hvert orð sem kúnnarnir sögðu, en þetta reddaðist einhvern veginn og maður lifandi hvað það gleður fólkið að heyra einhvern tala frönsku!!! Ég veit nú ekki hvort ég yrði svona glöð ef einhver myndi ávarpa mig á íslensku í búð erlendis... vissulega yrði ég undrandi, en myndi nú kannski ekki hoppa upp og klappa saman lófunum og brosa hringinn... Við erum með geðveikt krúttlegar lopapeysur á börn, allt niður í tveggja ára, ég sé nú bara Jóhönnu Lan í anda! En þær kosta að sjálfsögðu morð fjár... þó ekki jafn mikið og fullorðinspeysurnar, ég veit ekki, kannski er það bara ég en mér finnst geðveiki að kaupa peysu á 10.280 kr... líklega er ég ekki nógu mikill túristi í mér...
Síjúleiter :o)
föstudagur, júní 20, 2003
Ég hef ekki skrifað neitt lengi, en ég hef afsökun.
Þegar ég kom út var tölvan okkar í viðgerð þannig að ég hef verið sambandslaus. Nú er ég aftur koin með netaðgang, sem betur fer.
Ég er enn í fríi, fer ekki að vinna fyrr en um mánðarmótin. Það er ágætt að slaka á, taka lífinu með ró.
Á morgun kemur svo út nýja Harry Potter bókin, ég fæ hana á morgun og get varla beðið eftir henni. Það verður lítið annað gert en lesið á morgun, ég hlakka SVO til.
fimmtudagur, júní 19, 2003
Hmmm... það eru nú ekki allir jafn duglegir að skrifa... Þó að ég vilji nú ekki vera að ota mínum tota þá sýnist mér ég sjálf, moi, vera einna duglegust ásamt Þórunni... Valdís kemur nú líka sterkt inn... ;op
Ég er sem sagt í Hvammi, og byrja að vinna eftir ca. 3 mín... spurning hvort maður fari að reyna að taka eikkað til, það er ekki eins og það sé brjáluð traffík í símsvörun :o) Það var lítið að gera í bókabúðinni í dag, enda heldur hver heilvita maður sig heima hjá sér í svona subbuveðri. Þeir sem ráku nefið inn voru hranalegir og dularfullir, fyrir utan að sjálfsögðu útlendingana sem eru yndi... jafnvel æææææðððiii.... úff, ég svaf yfir mig í morgun... vaknaði kl. 09:09... ekki sniðugt... var mætt í vinnuna 21 mínútu síðar.
Ég ætla kannski suður 11. - 13. júlí!!! Arrrr!!! Það er samt ekki ákveðið, ég á nú eftir að tala við Helgu og Dísu... en það er bara eitt lítið skemmtiferðaskip á laugardeginum þannig að það ætti ekki að vera mikið að gera í vinnunni. Hvað segiði? Er það road trip? ;op
Jæja, þá er best að gera eikkað af viti... bæjó pæjó!
föstudagur, júní 13, 2003
Já Una mín....þú ert að missa vitið!!!! ;o) oh....þessi vinna er dauðans, ég var að vinna frá 8 til 5 í dag og núna er ég að fara aftur!!!!! Ég var að stjórnast í einhverjum 16 ára strákum í dag....það var stuð!!!!! jæja...ég verð að fara að koma mér í vinnuna...langaði bara að tjá mig aðeins ;o)
Ekki byrjar sumarið vel hjá mér... ég mætti í vinnuna kl. 13 á þriðjudaginn en fór heim eftir tvo tíma vegna þess að ég var með gubbupest... týpískt... var svo heima allan næsta dag og er í raun ennþá að jafna mig, matarlystin er ekki komin aftur og ég borða svona að meðaltali einu sinni á dag (og ef það þýðir ekki að ég sé veik, veit ég ekki HVAÐ gerir það!). Það er dáldið af túristum í bænum, sem er fínt því að það er gaman að afgreiða þá :o) Að vísu hafa þeir þann leiða ávana að koma svona 5 mín. fyrir lokun og versla þá alveg helling! En það fer samt bráðum að vera opið lengur held ég, þá fær maður yfirvinnukaup og líka smá tilbreytingu sem fylgir öðruvísi vinnutíma :o) Jæja... sé ykkur vonandi...
Úff púff, það er föstudagurinn þrettándi!!! Var næstum því búin að gleyma því... mundi það að vísu í morgun þegar ég var að keyra í vinnuna, dauðhrædd um að keyra á svartan kött eða eitthvað álíka... Ég held samt að það gæti vel verið að þessi dagur væri einmitt svona frídagur fyrir mig, þegar allir aðrir eru óheppnir er ég bara svona mellow... ;op Þetta er samt eikkað duló dagur... í morgun þegar stelpa sem er að vinna með mér var að rífa af dagatalinu hrundi það í gólfið og eikkað... spúkí... jæja nú er ég hætt!
þriðjudagur, júní 10, 2003
woooohoooooooooooooooooooo!!!!!! það var nú eins gott að ég fór á prófsýningu í dag því að stæ einkunnin mín hækkaði úr 6 í 7!!!!! wooohoooooooooooooooo!!!!! þetta bjargaði deginum!!!! arrrrrr!!!!! það var einhver villa í forritinu hans Níels :o) hummm......ég ætla að fara´út aftur og klára að slá og raka lóðina hans afa.....ég hlj´p inn á meðan mesta rigningin var :o) sjáumst....
mánudagur, júní 09, 2003
Hmmm... hef að vísu aldrei tekið eftir þessum hæfileika mínum... duló...
You Have the Power of Teleportation!
What's Your Magic Power?
brought to you by Quizilla
sunnudagur, júní 08, 2003
halló.....hérna sit ég í "ómenningunni" í Reykjavík......sem var af einhverjum dularfullum ástæðum víst menningarborg Evrópu á seinasta eða þarseinasta ári.....þvílík fásinna!!!! En allavegana þá er ég búin að gera alveg voðalega margt skemmtilegt......við mamma fórum að versla og hún keypti handa mér gallabuxur, kjól og bikini.....allt alveg GEÐVEIKT flott!!!! (það borgar sig greinilega að vera blankur....kannski ég leggi það í vana minn). Svo gisti ég hjá Ástu í gær og við slöppuðum bara af......fengum eitthvað letikast og svo í dag þá fór ég í sumarbústað með ömmu og afa að heisækja Dagnýju (systir pabba) og Guðna Pál (manninn hennar) og villingana (krakkarassgötin) þeirra. Það var rosa stuð....við fórum í pottinn og svo spilaði ég við þau og svo fórum við í fultl af leikjum.....ég er nebbla uppáhaldsfrænkan þeirra og auðvitað verð ég að standa undir nafninu ;o) en allavegana þá ætla ég að fara að koma mér og hætta að skrifa....enda nóg komið :o) sjáumst á morgunn eða hinn eða hinn eða hinn eða......
Ps. Una.....ég kom ekki nálægt þessari hringingu hjá þér á svona ókristilegum tíma!!!
laugardagur, júní 07, 2003
Jæja, þá eru prófin endelig búin!!! ÍHAAAA!!! Þá er að njóta þessara fáu frídaga sem maður hefur áður en maður byrjar að vinna fyrir sér...
Já, og by the way þá vil ég óska Ingu góðrar ferðar til Danmerkur og svo Tyskland (maður er nú stúdent í dönsku ;op). OG að sjálfsögðu góðrar skemmtunar í Tivoli eða Ströget. Vonum bara að það standi engir gamlir kallar hjá gosbrunninum að garga "sex!"... ;op
Já og p.s. þá skemmti ég mér alveg prýðilega í gær og komst heim í heilu lagi :o)
Já, OG svo vil ég óska Tótu góðrar skemmtunar í (ó)menningunni :o) EN ég ætla að vona að þú hafir ekki átt hugmyndina að því að mamma þín hringdi og VAKTI mig í morgun til að fá mig til að redda skeytasvörunarmönnum! ;op
Ykkur hinum óska ég ekki neins!!! ;op
miðvikudagur, júní 04, 2003
Je suis heureuse!!! = Ég er hamingjusöm!!! Gekk ágætlega í munnlega prófinu og bara mjög vel í því skriflega :o) Að vísu var þetta alveg týpískt... þegar við Guðrún og Helga Vala vorum að læra fyrir prófið þýddum við ALLA lestextana sem voru til prófs orð fyrir orð... NEMA tvo... kom svo ekki annar þeirra á prófinu, sem olli því að við Guðrún fengum hláturskast þegar við litum á prófin okkar... hmmm...
Ég er að fara í Brynju... namminamm :o)
þriðjudagur, júní 03, 2003
Hæhæ, ég er mjög ódugleg og á að vera að læra þýsku :( En það er allt í lagi því að ég veit að Inga er ekki að læra og ég hef vissar efasemdir um það að Tóta sé að læra því að að er bara á tali heima hjá henni, þó það gæti verið múttan :) En ef ég þekki Tótu rétt þó er hún ekkert að drukkna í náminu :) Jæja ég vil nú samt eiginlegaa ekkert að tíminnn líði því þá styttist óðfluga í %#%#%$&$#% íslenskuprófið!!!
mánudagur, júní 02, 2003
Ég er þér hjartanlega sammála Una.
Nú eru bara tvö próf eftir!!! Þetta er alveg að verða búið, ég get varla beðið eftir því. Mig langar í frí og afslöppun...
En það gengur ekki strax, því miður. C'est la vie, I suppose.
sunnudagur, júní 01, 2003
Mér finnst að það ætti að setja lög gegn því að hafa kafla í námsbókum lengri en svona 30 - 35 bls.!!! Nefni ég hér dæmi 5. kafla í minni ástkæru félagsfræðibók, sem er ÓENDANLEGUR og þar að auki viss endurtekning á 2. kafla sem er mjög leiðinlegur... Úff, bara þrjú próf eftir... eða reyndar fjögur ef ég tel munnlega frönskuprófið með (sem ég reyndar geri oftast ekki... þó að ég viti ekki almennilega af hverju, það er jú próf eins og öll hin og á skilið að fá viðurkenningu!) sem gæti hugsanlega verið dauðinn... en ætli manni takist ekki að klóra sig fram úr því, mér hefur nú vanalega gengið ágætlega í þessum munnlegu prófum, þrátt fyrir skort á flegnum peysum... jæja, Practice... bæjó :o)
Góðan daginn......ég nenni ekki að lesa meira!!! er samt bara komin í 5. kafla.....ekki nógu gott.....en þetta er bara svo mikið og erfitt!!!! sveiattan!!!! það ætti að banna svona mörg hugtök í einni bók!!!!!! jæja....ég er hætt að tuða.....ætla að vafra aðeins meira um á alheimsnetinu og fara svo að lesa......veriði sælar.....
