Hmmm... er ekki viss um að ég leggi í myndatökur eftir að hafa skoðað myndaalbúmið hennar Valdísar um daginn... Slíkan fjölda af ljótum myndum af einni manneskju (mér sem sagt) í sama albúminu hef ég aldrei séð á minni stuttu (en viðburðaríku) ævi. Fékk samt dáldið áfall þegar ég áttaði mig á því málið þarf ekkert endilega vera að ég myndist illa... kannski er ég bara svona ljót! Mun af þeim ástæðum íhuga að klæðast hauspoka í náinni framtíð ;op
Ég er full efasemdum um klippinguna, veit ekki af hverju... Að vísu las ég stjörnuspá í Extra sama dag og hún fór fram, sem hljómaði einhvern veginn svona:
"Þú snyrtir í dag svæði sem legið hefur í órækt lengi. Álitsauki skapast síðar."
Ég fer suður á morgun!!! Vúhú!!! Ég fer með mömmu og Hjalta, því að enginn vildi (eða gat) fara með mér á mínum bíl (ég sver að það er engin mjólkurfýla lengur, ég SVER!) :o( Það verður örugglega fínt, en mig langaði nú samt svo mikið að geta farið á mínum eigin bíl og geta bara verið frjáls, því að það er svo leiðinlegt að vera alltaf upp á aðra kominn til að skutla sér hingað og þangað. Mamma og Hjalti ætla að skutla mér og Helgu Auði austur undir Eyjafjöll til Dísu á föstudaginn, svo ætlum við bara að spila þetta eftir eyranu...
Aldrei þessu vant var mikið að gera í vinnunni í dag, sérstaklega eftir kaffi. Ég seldi, ekki eitt, ekki tvö, heldur
6 víkingaskip.... afar dularfullt, sér í lagi sökum þess að það var einungis til tveggja viðskiptavina (eða tvennra para, ef rétt skal vera rétt (og það skal það!)), sem hvor um sig keypti þrjú stk.... Túristar, hver skilur þá?
Í sumar hef ég sett mér ýmis markmið í sölunni og það hefur gengið glimrandi vel! Ég hef selt:
- Dularfullar styttur gerðar úr slípuðum steinum, með svona gerfi (uhh, væntanlega) augu sem rúlla um... vitiði hvað ég meina?
- Bauk, en ekki bara venjulegan bauk, heldur ROLLUbauk.
- Fáránlega mörgæsarstyttu (dáldið teiknimyndarlega). Það eru ekki einu sinni mörgæsir á Íslandi, halló!
Þetta er 300% betri árangur en í fyrra, en mér hefur ekki enn tekist að selja ROLLUbakpokann... hvað er málið með að hafa allt rollu? Rollusápur, rollukönnur, rollutöskur, o.s.fr.
Núna ætla ég að selja viðbjóðslega ljóta (not to mention creepy) styttu af trölli sem er bert og á fjórum fótum (WHY?!), bara til að ég þurfi ekki að horfa upp á hana lengur... Wish me luck :o)